Met Gala-hátíðin er einn af stórviðburðum ársins hjá elítunni í Hollywood. Stórstjörnur hvaðanæva að úr heiminum skarta sínu fínasta pússi og keppast um athygli fjölmiðla er þær ganga upp tröppurnar sem liggja að Metropolitan-safninu í New York, íklæddar íburðarmiklum spariklæðnaði sem tengist þema ársins.
Met Gala-hátíðin mun eiga sér stað í byrjun næstu viku, mánudaginn 6. maí, og verður að sjálfsögðu haldin á Metropolitan-safninu líkt og fyrri ár.
Þema hátíðarinnar verður Superfine: Tailoring Black Style sem stjörnurnar munu án efa túlka á mismunandi vegu og verður því forvitnilegt að sjá í hverju þær mæta.
Í tilefni af niðurtalningunni rifjaði bandaríska tískutímaritið Elle upp íburðarmestu og eftirminnilegustu búninga stjarnanna síðustu ár og það má með sanni segja að frumlegheitin hafi ávallt verið í forgrunni.
Smartland ákvað að bæta aðeins við listann, enda þvílík listaverk sem hafa farið upp þessar tröppur.
Það er óhætt að segja að söngkonan Rihanna hafi stolið senunni á rauða dreglinum árið 2023 þegar hún mætti í hvítum kjól frá Valentino.
Íslenska söngundrið Laufey Lín Bing Jónsdóttir var einkar glæsileg í kjól frá indverska hönnuðinum Prabal Gurung á síðasta ári.
Bandaríska leikkonan Blake Lively er í miklu uppáhaldi hjá stærstu tískuhúsum heims og keppast þau á hverju ári um að fá að klæða hana.
Lively mætti á viðburðinn í gullfallegum kjól frá Versace árið 2018.
Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kim Kardashian vakti mikla athygli þegar hún klæddist gömlum kjól sem var í eigu leikkonunnar Marilyn Monroe.
Monroe klæddist kjólnum þegar hún söng afmælissönginn fyrir þáverandi forseta Bandaríkjanna John F. Kennedy árið 1962.
Ofurfyrirsætan Gigi Hadid var heldur framtíðarleg í vínrauðri hönnun frá ítalska tískuhúsinu Versace þegar hún mætti á Met Gala-hátíðina 2022.
Enska leikkonan Florence Pugh mætti með áhugavert höfuðfat á hátíðina 2023.