Þessar buxur verða aðalmálið í sumar

Þú verður að eignast svona buxur fyrir sumarið.
Þú verður að eignast svona buxur fyrir sumarið.

Víðar hör­bux­ur verða út um allt í sum­ar, stíliseraðar með lág­um lát­laus­um hæla­skóm, striga­skóm eða san­döl­um. Kost­ur­inn við þessa flík er þæg­ind­in því þær eru nán­ast eins og nátt­bux­ur. Bux­urn­ar er hægt að nota við af­slappaðri til­efni og helst þegar sól­in skín. 

Bux­ur sem þess­ar passa vel við skyrtu í sama efni og lit, litla stutterma­boli og töff sólgler­augu. Flest­ir lit­ir ganga upp í þess­um stíl en í versl­un­um núna er mikið af ljós­brún­um, hvít­um, ólífug­ræn­um og ljós­blá­um lit.

Hör­efni fylgja marg­ir kost­ir. Það er sterkt efni og þorn­ar hraðar en bóm­ull. Það er mjög oft notað við sum­arfatnað vegna þess hversu vel það and­ar. Hör vex hæg­ar en bóm­ull og er þess vegna dýr­ara efni en einnig vegna þess að það er erfiðara að vefa það. Það er mjög mikið til af flík­um í dag úr hör­blöndu og er því þá oft blandað við bóm­ull eða önn­ur gervi­efni. Hör krump­ast en þegar hör á í hlut þykir það ekki galli held­ur eyk­ur við af­slappað út­lit flík­inn­ar.

Hvítar hörbuxur frá Polo Ralph Lauren, fást í Mathildu og …
Hvít­ar hör­bux­ur frá Polo Ralph Lauren, fást í Mat­hildu og kosta 44.990 kr.
Koníaksbrúnar hörbuxur frá Polo Ralph Lauren, fást í Mathildu og …
Koní­aks­brún­ar hör­bux­ur frá Polo Ralph Lauren, fást í Mat­hildu og kosta 44.990 kr.
Hörbuxur frá Samsoe Samsoe, fást í Galleri Sautján og kosta …
Hör­bux­ur frá Sam­soe Sam­soe, fást í Galleri Sautján og kosta 19.995 kr.
Buxur frá Selected sem kosta 13.995 kr.
Bux­ur frá Selected sem kosta 13.995 kr.
Ólífugrænar hörbuxur frá Samsoe Samsoe, fást í Karakter og kosta …
Ólífug­ræn­ar hör­bux­ur frá Sam­soe Sam­soe, fást í Karakt­er og kosta 19.995 kr.
Hörbuxur skreyttar steinum frá Zöru sem kosta 15.995 kr.
Hör­bux­ur skreytt­ar stein­um frá Zöru sem kosta 15.995 kr.
Röndóttar hörbuxur frá Zöru sem kosta 7.995 kr.
Rönd­ótt­ar hör­bux­ur frá Zöru sem kosta 7.995 kr.
Hvítar buxur frá Gestuz, fást í Andrá og kosta 24.990 …
Hvít­ar bux­ur frá Gest­uz, fást í Andrá og kosta 24.990 kr.
Ljósbláar hörbuxur frá Ralph Lauren, fást í Mathildu og kosta …
Ljós­blá­ar hör­bux­ur frá Ralph Lauren, fást í Mat­hildu og kosta 29.990 kr.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda