Saumanámskeið sem fór úr böndunum

Anna Kristín Kristjánsdóttir, Hildur Hafstein, Svanhildur Sigurðardótitr, Anna Sigríður Arnardóttir, …
Anna Kristín Kristjánsdóttir, Hildur Hafstein, Svanhildur Sigurðardótitr, Anna Sigríður Arnardóttir, Birna Bragadóttir, Sunna Jóhannsdóttir, Björk Eiðsdóttir, Vala Garðarsdóttir, Helga Árnadóttir, Marta María Winkel Jónasdóttir og Helga Thors voru saman á þjóðbúninganámskeiði.

Í fyrra ákvað ég að gefa sjálfri mér tíma fyr­ir mig þegar ég skráði mig á nám­skeið Odd­nýj­ar Kristjáns­dótt­ur hjá Heim­il­isiðnaðarfé­lagi
Íslands. Ég var búin að gleyma hvað það er gam­an að sitja og sauma og geta ekki hugsað um neitt nema sauma­skap­inn.

For­saga máls­ins er sú að á þjóðhátíðar­degi Íslend­inga, 17. júní, í fyrra skipu­lögðu vin­kon­urn­ar Anna Sig­ríður Arn­ar­dótt­ir, Birna Braga­dótt­ir og Björk Eiðsdótt­ir göngu yfir Arn­ar­fell á Þing­völl­um í þjóðbún­ing­um. Ég ætlaði nú bara að mæta í göngu­föt­um, því ég átti ekki þjóðbún­ing, en hópþrýst­ing­ur leiddi mig niður í Þjóðdansa­fé­lag í Mjódd­inni. Þar sem ég stóð úti á miðju gólfi í Mjódd­inni, að leigja mér 19. ald­ar peysu­föt fyr­ir 17. júní, kviknaði nýtt ljós innra með mér. Hvers vegna var ég ekki að sauma á kvöld­in í stað þess að skrolla í sím­an­um mín­um eða vinna í tölv­unni? Hvers vegna var ég hætt að gera það sem ég elskaði að gera þegar ég var lít­il stelpa og ung­ling­ur? Það er að segja að sauma föt. Það er lítið gagn í því að vera með stúd­ents­próf í handa­vinnu ef þekk­ing­in er ekki nýtt í neitt gáfu­legt. Það að kunna að sauma öðlaðist þó nýja merk­ingu á þessu nám­skeiði því ég kunni í raun afar lítið.

Oddný Kristjánsdóttir klæðskeri og sérfræðingur í þjóðbúningum Íslendinga sneið alla …
Odd­ný Kristjáns­dótt­ir klæðskeri og sér­fræðing­ur í þjóðbún­ing­um Íslend­inga sneið alla bún­ing­ana og kenndi réttu hand­tök­in í þjóðbún­ingasaumi. Ljós­mynd/​Birta Stef­áns­dótt­ir

Þegar upp kom sú hug­mynd á 17. júní að skrá sig á nám­skeið í þjóðbún­ingasaumi var ég staðráðin í að vera með. Það er samt stór ákvörðun því það kost­ar bæði mikla pen­inga að sauma þjóðbún­ing og svo er það tíma­frekt. Ég spurði sjálfa mig hvort ég hefði tíma til að sitja og sauma öll kvöld! Björk Eiðsdótt­ir setti sam­an hóp af 11 kon­um úr ólík­um átt­um. Sum­ar þekkti ég ágæt­lega og aðrar minna. Odd­ný Kristjáns­dótt­ir, klæðskeri og eig­andi Þjóðbún­inga­stof­unn­ar 7ÍHÖGGI, tók að sér að kenna okk­ur og El­iza­beth Katrín Ma­son klæðskeri var henni inn­an hand­ar.

Þótt nám­skeiðið hæf­ist ekki fyrr en í janú­ar á þessu ári hófst und­ir­bún­ing­ur síðasta haust því þá þurfti hóp­ur­inn að ákveða hvaða bún­ing ætti að sauma. Það þurfti að fara í mál­töku og velja efni svo allt myndi rúlla smurt fyr­ir sig þegar nám­skeiðið hæf­ist. Ég var strax staðráðin í að sauma 20. ald­ar peysu­föt sem sam­an­standa af stakk, pilsi og svuntu ásamt húfu. Það var aðallega vegna þess að Birna Braga­dótt­ir klædd­ist peysu­föt­um af formóður sinni á 17. júní í fyrra og mér fannst þau eitt­hvað svo klæðileg.

Hér erum við Helga Árnadóttir og Helga Thors sem voru …
Hér erum við Helga Árna­dótt­ir og Helga Thors sem voru með mér á nám­skeiðinu. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Nám­skeiðið fór ró­lega af stað en við byrjuðum á því að sauma pilsið. Aðal­málið var að setja satín­borða á fald­inn, sauma öðrum meg­in í sauma­vél og handsauma kant­inn hinum meg­in. Ég hef aldrei verið sér­lega góð í handsaumi og þurfti að nota alla þá þol­in­mæði sem til var til þess að ná tök­um á þessu. Ég ákvað að sleppa tök­un­um og treysta því að Odd­ný og El­iza­beth myndu leiða okk­ur áfram og tosa okk­ur upp úr skurði ef til þess kæmi.

Þegar við byrjuðum á nám­skeiðinu feng­um við þrjár teg­und­ir af tvinna: hvít­an gróf­an þræðing­art­vinna, svart­an þykk­an tvinna og einn hefðbund­inn.

Næst var komið að því að þræða svunt­una, mæla út rykk­ing­una og handsauma svo allt mjög ná­kvæm­lega.

Svo kom að stakkn­um sjálf­um, eða peysu­fatajakk­an­um. Þar þurfti að þræða tvö stykki sam­an, efnið sjálft og fóðrið, og það mátti ekki vera kipring­ur í neinu. Í ein­um tím­an­um rétti Odd­ný mér lengsta stykki sem ég hef séð og sagði mér að ég yrði að kríta á það heima. Sem sagt búa til jafn­stóra fern­inga og það mætti ekki skeika neinu. Ég var heilt laug­ar­dags­kvöld með þetta stykki í hönd­un­um og vandaði mig eins og ég gat. Þegar ég kom með það í næsta tíma setti Odd­ný upp svip og sagði að það þyrfti að gera þetta aft­ur. Það væri skekkja í þessu. En þetta var bara byrj­un­in því það átti eft­ir að þræða allt efnið til að geta búið til rykk­ingu en þetta stykki er aft­an á stakkn­um og set­ur mik­inn svip á hann.

Anna Kristín Kristjánsdóttir og Anna Sigríður Arnardóttir saumuðu á sig …
Anna Krist­ín Kristjáns­dótt­ir og Anna Sig­ríður Arn­ar­dótt­ir saumuðu á sig þessa fal­legu bún­inga. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Odd­ný sagði að það væri best að þræða grófa tvinn­ann í efnið í góðri birtu. Svo rétti hún mér vax og sagði að ég þyrfti að vaxa þráðinn áður en hann færi í til þess að hann yrði sterk­ari. Þessi tvinni mætti alls ekki slitna því ann­ars yrði allt ónýtt og þá þyrfti að byrja upp á nýtt.

Svo þurfti að sauma sniðsauma á jakk­ann, rykkja púfferm­ar og koma þeim í. Það var þó ekki gert fyrr en búið var að ganga frá boðung­un­um fram­an á stakkn­um sem eru marglaga. Eitt flókn­asta verk­efnið við stakk­inn, fyr­ir utan stykkið að aft­an, var að handsauma krækj­urn­ar á, sem halda stakkn­um sam­an. Þetta þarf helst að halda út æv­ina og þess vegna þurfti þetta að vera al­menni­lega gert.

Hildur Hafstein skartgripahönnuður klæðist 19. aldar upphlut sem hún saumaði …
Hild­ur Haf­stein skart­gripa­hönnuður klæðist 19. ald­ar upp­hlut sem hún saumaði á nám­skeiðinu. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Allt hafðist þetta eitt af öðru og var hóp­ur­inn dug­leg­ur að hitt­ast í sauma­klúbb­um þar sem kon­ur hjálpuðust að.

Það er dýr­mætt að gefa sjálf­um sér tíma til að gera eitt­hvað sem ekki hef­ur verið gert áður. Það er líka dýr­mætt að læra að vanda sig því það þýðir ekki að klambra þjóðbún­ingi sam­an með ein­hverj­um brussu­gangi. Skítaredd­ing­ar eru ekki leyfðar.

Þetta nám­skeið er strax farið að hafa áhrif á fata­skáp­inn því nú þegar er ég búin að falda bux­ur, víkka erm­ar á jakka og þrengja skyrtu. Það er eitt­hvað svo mik­il feg­urð í því að draga fram sterku les­gler­aug­un og saumalamp­ann og gefa sjálf­um sér tíma til að gera eitt­hvað skemmti­legt. Þegar bún­ing­arn­ir voru til­bún­ir þurfti að fagna en það var gert með því að klæða sig í bún­ing­inn í heima­húsi, labba í gegn­um miðbæ Reykja­vík­ur í hon­um og fara í heim­sókn niður á Alþingi þar sem vel var tekið á móti hópn­um.

Björk Eiðsdóttir saumaði 20. aldar upphlut á námskeiðinu.
Björk Eiðsdótt­ir saumaði 20. ald­ar upp­hlut á nám­skeiðinu. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda