Góð dragt getur komið manni mjög langt: í vinnuna, út að borða, í afmæli eða önnur boð. Þetta er góð lausn fyrir þá daga sem lítill tími er til þess að hugsa í hverju maður ætlar að vera.
Það eina sem þarf að passa er að hafa dragtina vel pressaða því það er fátt verra en krumpuð dragt. Það eru þó undantekningar á þessu eins og öðru og það er aðeins ef dragtin inniheldur hörblöndu eða er úr 100% hörefni.
Falleg dragt er fjárfesting en það þarf að hafa það í huga að þú munt nota fallega dragt mjög mikið. Veldu þér dragt í klassískum jarðarlitum og hún fer aldrei úr tísku.
Hér eru nokkrar smekklegar dragtir fyrir hin ýmsu tilefni.