Skims opnar verslun í Lundúnum

Skims framleiðir aðhaldsfatnað, heimaföt, nærföt og sundföt meðal annars.
Skims framleiðir aðhaldsfatnað, heimaföt, nærföt og sundföt meðal annars. Samsett mynd

Und­irfata­merkið Skims er í eigu Kim Kar­dashi­an og hef­ur vaxið ógur­lega síðan það var stofnað árið 2019. Nú hyggst hún færa út kví­arn­ar í Evr­ópu og stefn­ir á að opna versl­un á Re­g­ent Street í Lund­ún­um. 

Skims hef­ur þó verið fá­an­legt í borg­inni en litl­ar deild­ir eru bæði í vin­sælu versl­un­un­um Harrods og Selfridges. Merkið var stofnað af Kar­dashi­an og Svíj­an­um Jens Grede. Fyr­ir­tækið hef­ur gert tíu ára leigu­samn­ing á einni stærstu versl­un­ar­götu Lund­úna, Re­g­ent Street. Versl­un­in Ted Baker var áður til húsa í rým­inu en skammt frá er versl­un 66°Norður. 

Merkið er þekkt fyr­ir góðan aðhalds­fatnað og nær­föt. Síðan hafa þægi­leg heima­föt og nú sund­föt bæst við vöru­úr­valið.

Skims-óðir Íslend­ing­ar ættu því að gleðjast yfir þeim fregn­um að stærðar­inn­ar versl­un opni á þess­um vin­sæla áfangastað.

Kim Kardashian er stofnandi merkisins.
Kim Kar­dashi­an er stofn­andi merk­is­ins. Skjá­skot/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda