1.700 störf í hættu hjá Burberry

Fyrir utan Burberry-verslunina í Lundúnum.
Fyrir utan Burberry-verslunina í Lundúnum. Henry Nicholls/AFP

Breska tísku­húsið Burberry hef­ur til­kynnt að 1.700 störf inn­an fyr­ir­tæk­is­ins séu í hættu. Illa hef­ur gengið hjá Burberry, sem þekkt­ast er fyr­ir köfl­ótta mynstrið og ryk­frakk­ana, síðustu ár. Nú reyn­ir fyr­ir­tækið að fækka störf­um til að sýna fram á hagnað í fyrsta skiptið í nokk­ur ár. 

Lúx­us­hluti tísku­heims­ins hef­ur verið óstöðugur síðustu ár og mörg fræg­ustu tísku­hús heims verið í vand­ræðum. 

Upp­sagn­irn­ar eru hluti af stærri skipu­lags­breyt­ing­um sem bú­ist er við að muni spara fyr­ir­tæk­inu rúma 10 millj­arða króna. Aðgerðirn­ar koma í kjöl­far þeirr­ar óvissu sem hef­ur skap­ast á alþjóðamarkaði sem jókst veru­lega eft­ir að Don­ald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, til­kynnti um tolla á helstu viðskipta­fé­laga Banda­ríkj­anna.

Útlitið hef­ur verið svart um tíma hjá Burberry. Þetta er talið vera vegna breyt­inga á stjórn­end­um og hönnuðum, verðhækk­ana sem féllu í grýtt­an jarðveg hjá viðskipta­vin­um og víðtæk­um sam­drætti í neyslu á lúxusvöru um all­an heim en sér­stak­lega í Kína, stærsta er­lenda markaði tísku­húss­ins.

Störf­in sem aðallega eru í hættu eru á skrif­stof­um fyr­ir­tæk­is­ins en einnig í versl­un­um og verk­smiðjum.

Burberry var stofnað árið 1856 af Thom­as Burberry sem var þá aðeins 21 árs gam­all. Árið 1870 hafði fyr­ir­tækið fest sig í sessi með því að ein­beita sér að þróun úti­vistarfatnaðar. Árið 1879 kynnti Burberry gabardín-efni sem var slit­sterkt, vatnsþolið og andaði vel. Þetta var gert á þann hátt að þræðirn­ir í efn­inu voru gerðir vatns­held­ir áður en efnið var ofið. Árið 1891 opnaði Burberry versl­un á Hay­mar­ket í Lund­ún­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda