Ný æfingalína ríka fólksins

Eru þetta hlutirnir sem vantar til að fullkomna heimaæfinguna?
Eru þetta hlutirnir sem vantar til að fullkomna heimaæfinguna?

Marg­ir telja að ný föt eða búnaður fyr­ir rækt­ina komi fólki í gang af al­vöru. Ef það er langt um liðið frá síðustu æf­ingu þá er elsta trixið í bók­inni að fjár­festa í nýj­um bol eða stutt­bux­um og þá er allt í einu gam­an að mæta aft­ur. 

Þetta veit franska há­tísku­húsið Cel­ine sem hef­ur nú sett í sölu þær fal­leg­ustu æf­inga­vör­ur sem völ er á. Í lín­unni má meðal ann­ars finna jóga­dýnu, ketil­bjöllu, lóð, sippu­band og vatns­brúsa úr stáli í leður­hulstri. Þeir sem aðhyll­ast fag­ur­fræði í öll­um kim­um lífs­ins ættu að vera ánægðir núna en eina vanda­málið er verðmiðinn. Þess­ar vör­ur kosta meira en geng­ur og ger­ist á þess­um markaði. 

Lín­an er viðbót við lífs­stíls­heim­inn sem merkið er að skapa sér. Þó að merkið sé hvað þekkt­ast fyr­ir há­tísk­una, skóna og tösk­urn­ar þá er hægt að fjár­festa í hlut­um eins og sól­stól­um, hjóla­brett­um, skíðum, kert­um, fylgi­hlut­um fyr­ir hund­inn og snyrti­vör­um. 

Lín­an er ætluð til að gera heimaæf­ing­una meira el­eg­ant en þekk­ist nú til dags. Hlut­irn­ir eru í Cel­ine-brúnu leðri og vel merkt­ir C-lógó­inu. Ódýr­asta vara lín­unn­ar er jógakubbur­inn, sem fæst fyr­ir tæp­ar 25 þúsund krón­ur. Sú dýr­asta er ketil­bjall­an, 4,5 kg og gerð úr kálf­skinni og stáli. Hún kost­ar tæp­ar 400 þúsund krón­ur. 

Það verður fróðlegt að vita hvernig þessi lína selst og hverj­ir neyt­end­urn­ir eru. Stóra spurn­ing­in er þó sú hvort það megi svitna á fínt ít­alskt kálf­skinn!

Jógakubburinn kostar 25 þúsund krónur og er vel merktur.
Jógakubbur­inn kost­ar 25 þúsund krón­ur og er vel merkt­ur.
Jógadýnan ætti að endast þér ævina en hún kostar rúmar …
Jóga­dýn­an ætti að end­ast þér æv­ina en hún kost­ar rúm­ar 130 þúsund krón­ur.
Þung armbönd úr kálfaskinni sem kosta 97 þúsund krónur.
Þung arm­bönd úr kálfa­skinni sem kosta 97 þúsund krón­ur.
2.5 kg lóð úr stáli og kálfaskinni sem kosta 323 …
2.5 kg lóð úr stáli og kálfa­skinni sem kosta 323 þúsund krón­ur.
Önnur litaútgáfa af lóðunum, þessi kosta 314 þúsund krónur.
Önnur lita­út­gáfa af lóðunum, þessi kosta 314 þúsund krón­ur.
Gullfallega ketilbjallan sem kostar tæpar 400 þúsund krónur.
Gull­fal­lega ketil­bjall­an sem kost­ar tæp­ar 400 þúsund krón­ur.
Sippubandið fæst fyrir 131 þúsund krónur.
Sippu­bandið fæst fyr­ir 131 þúsund krón­ur.
Er þetta fallegasti brúsi í heimi?
Er þetta fal­leg­asti brúsi í heimi?
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda