„Það var ekki vandi að klæða frú Vigdísi“

Hreinn Líndal óperusöngvari klæddi Vigdísi Finnbogadóttur forseta við upphaf forsetatíðar …
Hreinn Líndal óperusöngvari klæddi Vigdísi Finnbogadóttur forseta við upphaf forsetatíðar hennar. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Hreinn Lín­dal óperu­söngv­ari klæddi frú Vig­dísi Finn­boga­dótt­ur fyrr­ver­andi for­seta fyrstu árin henn­ar í embætti. Með þeim myndaðist vin­skap­ur sem lif­ir enn í dag, en hann fékk tísku­hús á borð við Cerutt­i1881, Valent­ino og Hermés til að hanna og sauma fatnað á hana

„Ég rak tísku­húsið H. Lín­dal á Skóla­vörðustíg á þeim tíma sem frú Vig­dís Finn­boga­dótt­ir var kjör­in for­seti. Þetta var í upp­hafi ní­unda ára­tug­ar­ins eða í kring­um 1980. Versl­un­in á Skóla­vörðustíg var í anda há­tísku­versl­ana í Evr­ópu. Ég var í góðu sam­bandi við fjöl­mörg tísku­hús í Frakklandi og á Ítal­íu þar sem ég vildi bjóða upp á það besta. Í versl­un­inni var ég með frá­bært úr­val af vör­um, mest frá Cerutt­i1881, en einnig vör­ur frá Hermés og Valent­ino svo eitt­hvað sé nefnt,“ seg­ir Hreinn Lín­dal óperu­söngv­ari sem sá um að klæða for­set­ann fyrstu árin henn­ar í embætti.

„Þegar frú Vig­dís Finn­boga­dótt­ir var kjör­in for­seti þá langaði mig að aðstoða hana í sam­bandi við klæðnað henn­ar, ekki síst vegna þeirra sam­banda sem ég hafði við Valent­ino á Ítal­íu, Cerutt­i1881 og Hermés í Par­ís. Ég hafði því sam­band við hana og var hún mjög þakk­lát fyr­ir það. Ég hugsa með mik­illi hlýju til þess­ara ára og henn­ar Vig­dís­ar Bjarna­dótt­ur einnig, sem starfaði á skrif­stofu for­seta um langt skeið,“ seg­ir Hreinn.

Hér eru Hreinn og Vigdís á góðri stundu.
Hér eru Hreinn og Vig­dís á góðri stundu. Ljós­mynd/​Aðsend

Sam­starfið hófst þannig að Vig­dís Finn­boga­dótt­ir kom í versl­un­ina á Skóla­vörðustíg þar sem þau Hreinn áttu sam­tal um hvað hana vantaði og hvaða op­in­ber­ar heim­sókn­ir væru á dag­skrá henn­ar. „Ég man að ég notaði fal­lega ljós­mynd af henni sem ég fór með utan, svo hönnuðirn­ir og klæðsker­ar­arn­ir sem ég vann með gætu séð hvernig per­sóna hún var,“ seg­ir hann.

Þennan kjól valdi Hreinn á Vigdísi. Hann er frá Valentino …
Þenn­an kjól valdi Hreinn á Vig­dísi. Hann er frá Valent­ino og er mynd­in tek­in við upp­haf for­setatíðar henn­ar. Ljós­mynd/​úr bók­inni Vig­dís - kona verður for­seti

„Í mín­um huga var ég að klæða drottn­ingu“

Í fyrstu op­in­beru heim­sókn Vig­dís­ar, þegar Mar­grét Þór­hild­ur Dana­drottn­ing bauð henni í heim­sókn, vildi hann gera góðan kjól fyr­ir frú Vig­dísi. Ekki síst þar sem hún átti að koma fram í kvöld­verði þar sem yfir 200 alþjóðleg­ir ljós­mynd­ar­ar voru boðnir að mynda viðburðinn.

„Af því til­efni fór ég til Flórens á Ítal­íu, sem var miðstöð tísku og hönn­un­ar á þeim tíma, þar sem m.a. höfuðstöðvar Valent­ino-tísku­húss­ins voru á ní­unda ára­tugn­um. Þar hitti ég tvær roskn­ar kon­ur sem stýrðu versl­un­inni. Þær voru mjög al­menni­leg­ar og þótti þeim mik­ill heiður fyr­ir vörumerkið að fá það verk­efni að hanna og sauma kjól á fyrsta kven­for­seta heims­ins,“ seg­ir Hreinn og það má heyra á hon­um að hann var ánægður með út­kom­una. „Frú Vig­dís leit út eins og drottn­ing í kjóln­um, þar sem hún stóð upp í kvöld­verðarboði Dana­drottn­ing­ar og hélt fal­lega ræðu eins og henni var einni lagið. Það var mik­ill sómi að fram­komu frú Vig­dís­ar fyr­ir okk­ur Íslend­inga en í mín­um huga var ég að klæða drottn­ingu þegar ég var að klæða frú Vig­dísi. Hún var ein­stak­lega fal­leg kona með svo fal­leg­an per­sónu­leika líka. Allt sem hún tók sér fyr­ir hend­ur gerði hún af alúð og elsku og svo bar hún sig alltaf svo fal­lega,“ seg­ir hann og bæt­ir við að hún hafi fært sér vasa frá Royal Copen­hagen í þakk­læt­is­skyni.

Hér er Vigdís í kjól frá tískuhúsinu Valentino sem Hreinn …
Hér er Vig­dís í kjól frá tísku­hús­inu Valent­ino sem Hreinn hannaði á hana. Ljós­mynd/Ú​r safni Skrif­stofu for­seta Íslands

Það er auðséð að Hreinn er fag­ur­keri fram í fing­ur­góma. Þegar inn á heim­ili hans er komið tek­ur á móti blaðamanni sæt­ur ilm­ur af Bvlgari og er Hreinn sann­ur höfðingi heim að sækja. Sjálf­ur klæðist hann að jafnaði vönduðum flík­um frá ít­alska tísku­hús­inu Loro Pi­ana. Hver ein­asti hlut­ur inni á heim­il­inu virðist eiga sér sögu og er fag­ur­fræðilega val­inn eft­ir hans smekk. Stór flyg­ill stend­ur á miðju stofugólf­inu og býður Hreinn til sæt­is.

„Ég hef með ein­um eða öðrum hætti síðan þá haft ánægju af fal­leg­um fatnaði og verð að viður­kenna að ég var líka með góðan smekk. Að sama skapi var ekki vandi að kæða frú Vig­dísi. Það skipti mig máli að velja aðeins það besta fyr­ir hana og að gera samn­inga við tísku­hús­in um að það sem væri saumað fyr­ir hana væri gert með henn­ar per­sónu­leika í huga. Að fatnaður­inn myndi hæfa feg­urð henn­ar og stöðu í alþjóðlegu sam­hengi. Eins bað ég um að kjól­arn­ir sem væru gerðir fyr­ir hana væru ekki fjölda­fram­leidd­ir. Það var samþykkt og ein­ung­is búið til eitt ein­tak af öllu því sem var gert fyr­ir hana.“

Blái Valent­ino-kjóll­inn sem var saumaður úr vatnasilki

Aðspurður um blá­an silkikjól, sem ef­laust marg­ir muna eft­ir, sem Vig­dís klædd­ist í upp­hafi fer­ils síns þegar hún fór í fyrstu op­in­beru heim­sókn sína til Karls Gúst­afs Sví­a­kon­ungs, seg­ir Hreinn þann kjól hafa verið í miklu upp­á­haldi hjá sér.

„Þessi flík kom upp í huga mér og fór ég til teym­is­ins í Valent­ino og teiknaði hug­mynd­ir mín­ar upp fyr­ir þau. Kjóll­inn leit ein­stak­lega vel út þegar þau höfðu hannað hann og út­fært eft­ir mál­um frú Vig­dís­ar og að sjálf­sögðu mynd­inni sem ég fór með í flest­ir ferðir. Hann var með þykk­um erm­um úr flau­eli, svo hún gat ekki klæðst kápu yfir kjól­inn. Mér datt því í hug að láta gera mött­ul úr efn­inu, sem var vatnasilki (e. water silk). Það var gerð lít­il dúkka af henni í þess­um kjól, sem mér þykir vænt um að sjá frá þeim tíma,“ seg­ir hann og bæt­ir við að Ágúst Lín­dal bróðir sinn hafi unnið hjá sér í H. Lín­dal á þess­um tíma og verið dýr­mæt­ur stuðning­ur.

Vigdís Finnbogadóttir og Ronald Reagan.
Vig­dís Finn­boga­dótt­ir og Ronald Reag­an. Morg­un­blaðið/​RAX

„Ég man einnig eft­ir öðrum kjól, sem ég vildi að ég ætti góða ljós­mynd af. Sá kjóll vakti mikla at­hygli, það var kjóll­inn sem frú Vig­dís klædd­ist þegar hún sat við hlið Nancy Reag­an í brúðkaupi þeirra Díönu prins­essu og Karls Breta­kon­ungs. Frú Vig­dís var ekki mikið fyr­ir hatta, svo ég lét gera fal­legt höfuðfat fyr­ir hana sem fór vel við rós­ótta silkikjól­inn sem hún klædd­ist á ein­stak­an hátt.

Eins man ég eft­ir fal­leg­um jakka sem ég fann fyr­ir hana hjá Hermés-tísku­hús­inu, þann jakka notaði hún mikið enda fór hann henni mjög vel,“ seg­ir Hreinn.

Vigíds Finnbogadóttir varð fyrsta konan í heiminum þjóðhöfðingi í lýðræðislegri …
Vigíds Finn­boga­dótt­ir varð fyrsta kon­an í heim­in­um þjóðhöfðingi í lýðræðis­legri kosn­ingu þegar hún var kjör­in for­seti Íslands 28. júní 1980. Hér er hinn ný­kjörni for­seti á svöl­um heim­il­is síns að Ara­götu 2 en mik­ill mann­fjöldi safnaðist þar sam­an til að fagna henni. mbl.is/Ó​laf­ur K. Magnús­son

Vin­skap­ur sem hef­ur enst út lífið

Frá þeim tíma sem Hreinn klæddi Vig­dísi Finn­boga­dótt­ur myndaðist með þeim vin­skap­ur sem hef­ur hald­ist í gegn­um árin. „Þegar ég hugsa um frú Vig­dísi, þá geri ég það með hlýhug, þakk­læti og virðingu í huga. Frá því við hitt­umst fyrst hef­ur alltaf hald­ist þessi trygga vinátta okk­ar á milli. Ég fór marg­ar ferðir á Bessastaði þar sem hún bjó og um­gekkst af mik­illi virðingu. Hún gerði Bessastaði að sínu heim­ili, en þar var alltaf mik­il hlýja,“ seg­ir Hreinn og bæt­ir við að það hafi ekki verið annað hægt en að bera virðingu fyr­ir Vig­dísi Finn­boga­dótt­ur, hún hafi verið svo fal­leg kona og ein­stök per­sóna.

Hvað kenndi hún þér?

„Hún kenndi mér þakk­læti, virðingu og traust. Hún var einnig fyr­ir­mynd um vinnu­semi og að gera alltaf sitt besta,“ seg­ir Hreinn.

Hreinn Líndal og Vigdís Finnbogadóttir.
Hreinn Lín­dal og Vig­dís Finn­boga­dótt­ir. Ljós­mynd/​Aðsend

Ákveðin sjálfs­virðing fólg­in í því að klæða sig fal­lega

Það er ekki nokk­ur vafi í hans huga að þjóðarleiðtog­ar eru full­trú­ar þeirra þjóða sem þeir eru kosn­ir fyr­ir. Þeir ættu að hans mati að klæða sig upp á – og reynd­ar all­ir lands­menn líka – þegar farið er í leik­hús, brúðkaup eða aðra fögnuði. „Ég hugsa þetta þannig að þegar ég fer í leik­hús, brúðkaup eða á aðra viðburði, þá er ég að bera virðingu fyr­ir mér og öðru fólki með því að klæða mig upp á, í fal­leg­an spari­fatnað.“

Vigdís Finnbogadóttir var glæsileg til fara þegar hún hitti Mikhail …
Vig­dís Finn­boga­dótt­ir var glæsi­leg til fara þegar hún hitti Mik­hail Gor­bachev.

Hvernig upp­lif­ir þú klæðaburð núna miðað við þenn­an tíma sem við erum að ræða fyr­ir tæp­lega hálfri öld?

„Stund­um finnst mér þessi virðing vera að fara úr sam­fé­lag­inu. Sem dæmi þegar ég horfi á klæðaburð á Alþingi, þá finnst mér að all­ir karl­menn á þingi ættu að vera með bindi. Það sýn­ir, að mínu mati, ákveðna virðingu fyr­ir starf­inu og þjóðinni sem veit­ir fólk­inu braut­ar­gengi,“ seg­ir Hreinn. Það hef­ur reynst hon­um vel um æv­ina að hafa farið vel með hlut­ina sína. „Ég er ekki mikið að kaupa mér ný föt núna, en ég á tals­vert mikið af föt­um í fata­skápn­um. Ég fylgi ekki tísku­straum­um, held­ur er bara sá sem ég er, óháð því hvað aðrir eru að gera. Ég hef lært að maður breyt­ir ekki öðru fólki en maður get­ur breytt sér sjálf­um og föt­in skapa mann­inn. Svo er alltaf gott að muna að það get­ur verið dýrt að kaupa ódýrt. Bæði fyr­ir budd­una og um­hverfið.“

Vigdís ásamt Brian Mulroney, forsætisráðherra Kanada, 31. júlí árið 1989. …
Vig­dís ásamt Bri­an Mul­roney, for­sæt­is­ráðherra Kan­ada, 31. júlí árið 1989. Mynd­in var tek­in í Ottawa í op­in­berri heim­sókn Vig­dís­ar.
Vigdís heilsar Helmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands, 5. júlí árið 1988 …
Vig­dís heils­ar Helmut Kohl, kansl­ara Vest­ur-Þýska­lands, 5. júlí árið 1988 fyr­ir fund með hon­um á kansl­ara­skrif­stof­unni í Bonn á öðrum degi sex daga op­in­berr­ar heim­sókn­ar til Vest­ur-Þýska­lands. Reu­ter
Vigdís heilsar Jóhannesi Páli II. páfa í Vatíkaninu 17. október …
Vig­dís heils­ar Jó­hann­esi Páli II. páfa í Vatíkan­inu 17. októ­ber árið 1986. AP
Vigdís ásamt Ronald Reagan Bandaríkjaforseta fyrir utan Hvíta húsið í …
Vig­dís ásamt Ronald Reag­an Banda­ríkja­for­seta fyr­ir utan Hvíta húsið í Washingt­on 8. sept­em­ber árið 1982.
Vigdís hjá heiðursverði við stjórnarráðið í Ottawa í opinberri heimsókn …
Vig­dís hjá heiður­sverði við stjórn­ar­ráðið í Ottawa í op­in­berri heim­sókn sinni til Kan­ada 31. júlí árið 1989. Reu­ter
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda