„Ég reyni að blanda einkalífinu og vinnunni ekki saman“

Brynhildur á endalaust af sundfötum og er algjör sérfræðingur í …
Brynhildur á endalaust af sundfötum og er algjör sérfræðingur í þeim fatnaði. Því lá beinast við að hanna sín eigin.

Bryn­hild­ur Gunn­laugs­dótt­ir er áhrifa­vald­ur með yfir 118 þúsund fylgj­end­ur á sam­fé­lags­miðlin­um In­sta­gram og eina og hálfa millj­ón fylgj­enda á TikT­ok. Hún er einnig eig­andi íþrótta­merk­is­ins Arora Sportswe­ar sem kynnti ný­lega sund­föt til leiks en sjálf seg­ist hún eiga enda­laust af sund­föt­um.

„Ég náði mest­um vin­sæld­um árið 2020 þegar ég fór að birta á TikT­ok. Það var þá eitt mynd­band sem fór víða og skilaði mér um einni millj­ón fylgj­enda. Þá byrjaði ég að birta meira og meira og bolt­inn fór að rúlla. Ég endaði með 1,8 millj­ón­ir fylgj­enda á TikT­ok sem hef­ur lækkað svaka­lega síðan þá en það er aðeins erfiðara að vera virk með eigið fyr­ir­tæki og barn,“ seg­ir Bryn­hild­ur.

Hún er upp­haf­lega frá Eg­ils­stöðum en hef­ur verið bú­sett víða vegna fót­bolta og vinnu. Bryn­hild­ur á 16 mánaða gamla dótt­ur með kær­asta sín­um Dani Kolj­an­in, at­vinnu­manni í körfu­bolta, og seg­ir það hafa verið ákveðna áskor­un að sam­eina móður­hlut­verkið við starfs­framann.

„Ég er mjög þakk­lát fyr­ir kær­ast­ann minn sem er með henni alla daga á meðan ég er í vinn­unni. Hann er at­vinnumaður í körfu­bolta sem hent­ar vel en vinn­an hans er að fara á æf­ingu seinnipart­inn. For­eldr­ar mín­ir búa enn á Eg­ils­stöðum og fjöl­skylda hans í Króa­tíu svo það hef­ur oft verið erfitt að vera bara tvö. Þá koma vin­ir og önn­ur skyld­menni sterk inn sem við erum afar þakk­lát fyr­ir. Einnig er þægi­legt að vera minn eig­in yf­ir­maður því þá get ég stjórnað því svo­lítið hvenær ég vinn. Það koma dag­ar sem ég vinn langt fram á kvöld ef ég náði ekki að ljúka við hluti fyrr um dag­inn. Ég reyni að blanda einka­líf­inu og vinn­unni ekki sam­an svo það er líka mik­il­vægt að vera með aðstöðu fyr­ir vinn­una.“

Brynhildur hefur verið í íþróttum alla sína ævi og er …
Bryn­hild­ur hef­ur verið í íþrótt­um alla sína ævi og er lík­ams­rækt stór hluti af lífi henn­ar í dag.

Reka strand­b­ar í Króa­tíu

Á sumr­in flyt­ur fjöl­skyld­an til Króa­tíu þar sem kær­asti Bryn­hild­ar rek­ur strand­bar­inn Jardin. „Á vet­urna erum við á Íslandi en það get­ur breyst eft­ir því hvar hann er að spila. Þegar ég varð ólétt bjugg­um við til dæm­is í Belg­íu því hann var að spila þar,“ út­skýr­ir hún.

Dag­legt líf er afar venju­legt þó að það líti ekki út fyr­ir það á sam­fé­lags­miðlum.

„Ég vakna yf­ir­leitt um sjö þegar dótt­ir mín vakn­ar og ver morgn­in­um með henni. Ég fer svo í rækt­ina og í vinn­una og reyni að klára allt sem ég þarf að klára áður en ég fer heim um fjög­ur. Þá fer ég bara beint í að elda og leika við dótt­ur mína þangað til hún sofn­ar,“ seg­ir Bryn­hild­ur.

Eru ferðalög stór hluti af lífi þínu?

„Ég myndi ekk­ert endi­lega segja það. Ég hef ferðast mikið, en það lít­ur kannski út fyr­ir að ég ferðist meira á net­inu, það er lang­skemmti­leg­ast að fylgj­ast með því.“

Mikil eftirspurn en lítið úrval er af sundfötum hér á …
Mik­il eft­ir­spurn en lítið úr­val er af sund­föt­um hér á landi að mati Bryn­hild­ar.

Íþrótta­merkið sam­fé­lag kvenna

Bryn­hild­ur er stofn­andi íþrótta­merk­is­ins Arora Sportswe­ar sem hún seg­ir fyrst og fremst eiga að hjálpa kon­um sem eru að glíma við lítið sjálfs­traust í rækt­inni. Á síðasta ári kom vin­kona henn­ar, Sara Jasmín Sig­urðardótt­ir, inn í fyr­ir­tækið.

Hver er hugs­un­in á bak við Arora Sportswe­ar?

„Inn­blástur­inn kem­ur að mestu leyti frá því hvað ég þekki það vel að vera ekki með fullt sjálfs­traust í rækt­inni. Þegar ég var yngri þá hjálpaði það mér að vera í þægi­leg­um og stíl­hrein­um æf­inga­föt­um. Það er mik­il­vægt að líða vel í eig­in lík­ama, hvernig sem hann er. Við vilj­um að Arora sé ekki bara íþrótta­merki held­ur líka sam­fé­lag fyr­ir kon­ur á öll­um aldri sem vilja bæta eig­in heilsu hvort sem hún er lík­am­leg eða and­leg.“

Hvaðan kem­ur hönn­un­ar­áhug­inn og hvernig kom það til að þú mynd­ir stofna fata­merki?

„Ég hef verið í íþrótt­um alla mína ævi og stundað lík­ams­rækt í yfir ell­efu ár. Ég hef prófað enda­laust af æf­inga­föt­um og er mjög ná­kvæm í því sem ég klæðist í rækt­inni. Þau þurfa að vera flott, þægi­leg og end­ast vel. Svo hef ég alltaf haft mik­inn áhuga á sköp­un og að fá að gera eitt­hvað skap­andi. Mamma mín er lista­kona og ég hef það kannski frá henni en ég vinn best í skap­andi starfi.“

Hún seg­ir fata­merkið leggja sér­staka áherslu á ung­ar stelp­ur sem vilja að sér líði vel í eig­in skinni og ná ár­angri. „Með fal­leg­um og þægi­leg­um fatnaði hjálp­um við kon­um að finna sjálfs­traust og styrk í hverri æf­ingu, sér­stak­lega á þeim dög­um sem maður þarf þessa auka­hvatn­ingu.“

Hvaða áskor­un­um hef­ur þú mætt við rekst­ur­inn?

„Þær eru marg­ar og kannski erfitt að velja eitt­hvað eitt. En ég er ekki með neina mennt­un í fyr­ir­tækja­rekstri svo ég hef þurft að læra allt af reynsl­unni.“

Sundfötin eru ný í vöruúrvali Arora Sportswear.
Sund­föt­in eru ný í vöru­úr­vali Arora Sportswe­ar.

Sér­fræðing­ur í sund­föt­um

Af hverju sund­föt?

„Okk­ur fannst vera mik­il eft­ir­spurn og lítið úr­val af flott­um sund­föt­um á Íslandi. Þrátt fyr­ir að vera ekki sól­ar­land þá elsk­um við Íslend­ing­ar að fara í sund og við ferðumst mikið. Ég hef sjálf oft lent í því að þurfa flott bik­iní með stutt­um fyr­ir­vara og þá var eig­in­lega ekki hægt að finna neitt. Ég ferðast mikið og á mjög mikið af sund­föt­um sjálf svo ég tel mig sér­fræðing í mál­inu,“ seg­ir Bryn­hild­ur.

„Það kom ekk­ert annað til greina en að taka Arora aðeins í aðra átt og gefa út okk­ar eig­in sund­föt. Vin­kona mín, Sara Jasmín, kom inn í fyr­ir­tækið í fyrra og við höf­um unnið sam­an að sund­fa­talín­unni síðan. Það var gam­an að geta fengið annað sjón­ar­horn inn í fyr­ir­tækið en við Sara erum ólík­ar og þá mis­mun­andi hvaða snið og hönn­un við vilj­um. Við fund­um hinn full­komna milli­veg í okk­ur báðum.“

Hvað áttu mikið af sund­föt­um?

„Enda­laust. Ég átti fullt af sund­föt­um en núna hef­ur magnið fjór­fald­ast út af öll­um pruf­un­um sem við gerðum fyr­ir okk­ar eig­in sund­föt. All­ar mynd­irn­ar á In­sta­gram hjá mér í fyrra voru til dæm­is bara af mér í prufu­bik­in­íum frá Arora Swim. En það er mik­il­vægt að eiga flott og þægi­leg sund­föt.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda