67 ára og stal senunni í smóking

Svona vekur maður athygli!
Svona vekur maður athygli! Ljósmynd/AFP

Það er óhætt að segja að banda­ríska leik­kon­an Andie MacDowell hafi stolið sen­unni á rauða dregl­in­um í Cann­es er hún mætti á frum­sýn­ingu has­ar­mynd­ar­inn­ar Missi­on: Impossi­ble – The Final Rec­kon­ing á þriðju­dags­kvöldið.

MacDowell, sem er 67 ára og þekkt fyr­ir að klæðast gull­fal­leg­um síðkjól­um á rauða dregl­in­um, steig út fyr­ir þæg­ind­aramm­ann og skipti síðkjóln­um út fyr­ir glæsi­leg­an svart­an smók­ing.

Leik­kon­an klædd­ist einnig hvítri skyrtu og var með stóra svarta slaufu um háls­inn, en sú setti punkt­inn yfir i-ið og full­komnaði heild­ar­út­litið.

Leikkonan var í essinu sínu!
Leik­kon­an var í ess­inu sínu! Ljós­mynd/​AFP

MacDowell, einna þekkt­ust fyr­ir hlut­verk sín í kvik­mynd­um á borð við Four Wedd­ings and a Funer­al, Ground­hog Day, Green Card og St. Elmo’s Fire, hef­ur lengi þótt ein fal­leg­asta kona Hollywood, en leik­kon­an hef­ur ávallt leyft nátt­úru­legri feg­urð sinni að skína og sömu­leiðis leyft gráa hár­inu að njóta sín, enda óhrædd við að eld­ast með reisn.

Andie MacDowell skein skært á rauða dreglinum.
Andie MacDowell skein skært á rauða dregl­in­um. Ljós­mynd/​AFP

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda