Fimm hlutir sem verða áberandi í vortískunni

Hækk­andi sól og betra veður kall­ar oft á breyt­ing­ar í klæðaburði fólks. Sum­ar­tísk­an í ár er skemmti­leg og ein­kenn­ist hún meðal ann­ars af lita­dýrð, ein­fald­leika og mynstr­um. Smart­land tók sam­an fimm hluti sem eru lík­leg­ir til þess að vera áber­andi í tísk­unni þetta sum­arið.

„Jorts og skorts“

Jorts-bux­ur, sem eru stutt­ar galla­bux­ur, hafa vakið mikla at­hygli upp á síðkastið. Þær eru stíl­hrein­ar og þægi­leg­ar í mikl­um hita á sumr­in. Auk þess er auðvelt að stíla þær með öðrum flík­um. Einnig hafa „skorts“, sem eru pils með inn­byggðum stutt­bux­um, notið vin­sælda og tekið flugið. Þær eru líkt og „jorts“ þægi­leg­ar og smart, þá sér­stak­lega ef hlýtt er í veðri. 

Jorts buxur. Fást í Zöru og kosta 5.995 krónur.
Jorts bux­ur. Fást í Zöru og kosta 5.995 krón­ur. Ljós­mynd/​Zara

Lit­rík­ar flík­ur og mynstur

Lit­rík­ar flík­ur hafa und­an­farið stolið sen­unni í tísk­unni og þá sér­stak­lega eft­ir að það varð vin­sælla að „thrifta“ flík­ur frá síðustu ald­ar­mót­um. Bú­ast má við að sjá hlýra­boli í y2k stíl, föt með lit­ríku blóma­mynstri, síð pils í lit og skraut­lega kjóla í sum­ar. Kjól­ar og bol­ir svipaðir og Yeom­an og Stine Goya, mynstraðir og í skær­um lit, má einnig bú­ast við að verði áber­andi.

Mynstraður kjóll frá Hildi Yeoman, fæst í Yeoman og kostar …
Mynstraður kjóll frá Hildi Yeom­an, fæst í Yeom­an og kost­ar 49.990 kr.
Blómakjóll frá Stine Goya, fæst í Andrá og kostar 62.900 …
Blóma­kjóll frá Stine Goya, fæst í Andrá og kost­ar 62.900 kr.
Pallíettubuxur og skyrta frá Stine Goya fæst hjá Andrá Reykjavík. …
Pallí­ettu­bux­ur og skyrta frá Stine Goya fæst hjá Andrá Reykja­vík. Bux­urn­ar kosta 29.900 kr. og skyrt­an kost­ar 49.900 kr. Ljós­mynd/​Andrareykja­vik

Ball­et skór

Und­an­farna mánuði hafa „ball­et flats“ eða ball­et­skór verið að koma aft­ur í tísku. Fyrst voru þetta ein­ung­is fín­ir skór frá dýr­um merkj­um en núna hafa íþrótta­merki alþýðunn­ar tekið við sér og boðið upp á slíka skó á viðráðan­legu verði. Fremst í flokki eru Adi­das og Puma en Taekwondo ball­et­skórn­ir frá Adi­das hafa verið gríðarlega vin­sæl­ir síðustu vik­ur. 

Taekwondo ballet skórnir frá Adidas.
Taekwondo ball­et skórn­ir frá Adi­das. Skjá­skot/​Adi­das

Kjól­ar og bux­ur yfir pils

Íslenskt sum­ar­veður get­ur verið ófyr­ir­sjá­an­legt. Þá get­ur verið gott að geta farið í nokk­ur lög af föt­um eða „layerað“ eins og það kall­ast á slæmri ís­lensku. Að klæðast kjól­um og pils­um er hægt all­an árs­ins hring en upp á síðkastið hafa skvís­ur verið að fara í bux­ur und­ir pils í rík­ari mæli. Blúndupils og stutt­ir kjól­ar eru til að mynda afar smart yfir bux­ur.

Ljós­ar, ein­lita flík­ur

Þó að mynstur og lita­dýrð verði áber­andi þýðir það ekki að ein­fald­leik­inn fái ekki að njóta sín í sum­ar. Hvít­ar, ljós­blá­ar og kremlitaðar flík­ur halda áfram að vera vin­sæl­ar þá sér­stak­lega í ein­lituðum skyrt­um og yf­ir­höfn­um. 

Kremlitaðar buxur. Fást í Zöru og kosta 6.995 krónur.
Kremlitaðar bux­ur. Fást í Zöru og kosta 6.995 krón­ur. Ljós­mynd/​Zara
Hvít blússa. Kostar 5.995 krónur og fæst í Zöru.
Hvít blússa. Kost­ar 5.995 krón­ur og fæst í Zöru. Ljós­mynd/​Zara



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda