„Ég vil miklu frekar vera léttklædd en kappklædd“

Júlía Grönvaldt er listrænn stjórnandi, framleiðandi og stílisti.
Júlía Grönvaldt er listrænn stjórnandi, framleiðandi og stílisti. Ljósmynd/Úr einkasafni

Júlía Grön­valdt vinn­ur sjálf­stætt sem list­rænn stjórn­andi, fram­leiðandi og stílisti. Fyr­ir henni er tíska bæði tján­ing­ar­form og menn­ing­ar­legt fyr­ir­bæri og hef­ur eng­an áhuga á að klæða sig á þann hátt að hún falli í hóp­inn.

Hvað er tíska fyr­ir þér?

„Bæði tján­ing­ar­form og menn­ing­ar­legt fyr­ir­bæri sem end­ur­spegl­ar tíðarand­ann.“

 Finnst þér tísku­heim­ur­inn yf­ir­borðskennd­ur?

„Mér finnst ákveðin hlið tísku­heims­ins mjög yf­ir­borðskennd, já, sér­stak­lega þegar kem­ur að neyslu­hyggju og að fylgja tískutrend­um. En heim­ur tísk­unn­ar snýst í raun­inni um mjög meðvitaða sköp­un sem hæfi­leika­rík­ir hönnuðir tjá í klæðnaði, sem tísku­unn­end­ur fá svo að dást að. Í grunn­inn er tísku­heim­ur­inn mjög róm­an­tísk­ur og er fyr­ir fólk sem hug­ar að smá­atriðunum og kunni að meta hönn­un og sögu.“

Heimur tískunnar snýst um meðvitaða sköpun hönnuða að mati Júlíu.
Heim­ur tísk­unn­ar snýst um meðvitaða sköp­un hönnuða að mati Júlíu. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
Skapandi fatastíll og tíska er ástríða fyrir Júlíu.
Skap­andi fata­stíll og tíska er ástríða fyr­ir Júlíu. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

Föt­in segja til um hver við erum

Skipta föt máli?

Já, mér finnst föt skipta máli. Ekki bara af því að við þurf­um að klæða okk­ur held­ur líka af því hvernig við ákveðum að klæða okk­ur seg­ir mjög mikið um hver við erum, hvaðan við kom­um og hverju við vilj­um til­heyra.“

Hversu miklu máli skipt­ir fata­stíll og tíska þig?

„Ég myndi al­veg segja að það skipti mig miklu máli per­sónu­lega. Skap­andi fata­stíll og tíska er ástríða fyr­ir mér og ég hef eytt mikl­um tíma í að stúd­era áhrif­in og sög­una á bakvið. Ég er sjálf mjög róm­an­tísk með það að ég vil helst hafa mjög fal­legt í kring­um mig og hef mikla þörf fyr­ir að skreyta sjálfa mig og um­hverfið mitt. Mér þykir mjög vænt um hluti og klæðnað með ríka sögu og reyni að túlka það í klæðaburði eða hvernig ég kýs að skreyta í kring­um mig.“

Hverju tek­ur þú eft­ir í klæðaburði ann­ars fólks?

„Ætli ég taki ekki bara eft­ir því hvernig fólk kýs að skreyta sjálf­an sig á sinn hátt.“

Júlía er mikil sumarskvísa og vill frekar vera léttklædd en …
Júlía er mik­il sum­arskvísa og vill frek­ar vera létt­klædd en kapp­klædd. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
Júlía vill að fólk hætti að kaupa sér flíkur sem …
Júlía vill að fólk hætti að kaupa sér flík­ur sem það ætl­ar aðeins að nota einu sinni. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

Mik­il sum­arskvísa

Hef­ur staður­inn sem þú býrð á núna breytt hugs­un þinni hvað varðar tísku eða fata­stíl? Að hvaða leyti?

„Já klár­lega, þegar maður býr á Íslandi þá hent­ar miklu bet­ur að vera praktísk­ur og klæða sig eft­ir man­íska veðrinu hérna sem ég er ekki mjög hrif­in af. Ég er mjög mik­il sum­arskvísa og vil miklu frek­ar vera létt­klædd held­ur en kapp­klædd. En þar sem það er varla sum­ar á Íslandi þá hef ég svo­lítið þurft að end­ur­hugsa fata­skáp­inn. Mér finnst mjög tak­mark­andi hverju maður get­ur klæðst og það haml­ar mér smá með að vera skap­andi með fata­stíl­inn minn. En ég læt það alls ekki hafa of mik­il áhrif á mig.“

Get­ur fata­stíll verið frá­hrind­andi fyr­ir ann­ars aðlaðandi mann­eskju?

„Ég held það fari al­gjör­lega eft­ir smekk.“

Hvenær finnst þér þú vera mest aðlaðandi?

„Þegar mér líður mega vel.“

Júlía á ótrúlega mikið af fötum að hennar sögn.
Júlía á ótrú­lega mikið af föt­um að henn­ar sögn. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
Júlía hefur lítinn áhuga á nýjustu tísku.
Júlía hef­ur lít­inn áhuga á nýj­ustu tísku. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

Fylg­ir eng­um regl­um

Áttu mikið af ein­hverri sér­stakri teg­und af föt­um?

„Ég elska fal­lega vinta­ge-leður­jakka og um leið og ég sé leður­jakka sem ég er hrif­in af þá kaupi ég hann oft­ast, sama hversu marga ég á fyr­ir. Ég er með al­gjöra þrá­hyggju á fal­legu leðri.“

Eru ein­hverj­ar tísku­regl­ur sem þú fylg­ir alls ekki?

„Ég held ég fylgi ekki nein­um sér­stök­um regl­um.“

Er eitt­hvað sem fólk ætti að snar­hætta að kaupa sér?

„Hraðtísku og flík­ur sem það ætl­ar bara að nota einu sinni.“

Hver er þín allra upp­á­halds­flík?

„Ég á svo ótrú­lega mikið af flík­um sem ég held mikið upp á en ég myndi segja að upp­á­halds­flík­in og sú sem ég geng hvað mest í sé bleik 80’s mohair-kápa sem ég keypti í Vinta­ge-búð. Hún var með svaka­leg­um axla­púðum þegar ég keypti hana en mamma mín er mjög hæfi­leika­rík sauma­kona og gat breytt henni í meira af­slappaðra snið.“

Hver var fyrsta flík­in/​hlut­ur­inn sem þú fjár­fest­ir í?

„Ég man ekki eft­ir fyrstu fjár­fest­ing­unni en besta fjár­fest­ing­in hingað til eru vinta­ge-fjólu­blá New Rock-leður­stíg­vél sem ég er alltaf í. Þau eru „bad ass.“

Finnst þér nær­föt skipta máli?

„Já mér finnst fal­leg og þægi­leg nær­föt gera mikið fyr­ir mig, eins og ein­hver smá sjálfsu­mönn­un.“

Hvernig tjá­ir þú þig með klæðaburði?

„Ég vil tjá mig þannig að flík­urn­ar sem ég klæðist séu mjög ein­kenn­andi fyr­ir mig. Ég hef ekki áhuga á að klæða mig til að „fitta inn“ eða klæðast nýj­ustu trend­um. Ég vil vera fyr­ir­mynd fyr­ir þá sem vilja þróa sterk­an per­sónu­leg­an stíl og hafa ekki áhuga á tísku­straum­um. Það eru svo ótrú­lega marg­ir sem klæðast fal­leg­um tren­dy-flík­um sem þúsund aðrir geta klæðst en mér finnst mik­il­vægt að sýna hina hliðina líka, fyr­ir þá sem vilja aðgreina sjálf­an sig. Það heill­ar mig miklu frek­ar að klæðast flík­um sem ekki endi­lega all­ir myndu ganga í.“

„Ég hreyfi mig mjög mikið, borða bara góðan og næringarríkan …
„Ég hreyfi mig mjög mikið, borða bara góðan og nær­ing­ar­rík­an mat, fer í sund og hugsa vel um húðina.“ Ljós­mynd/Ú​r einka­safni

Stíll­inn þró­ast mikið

Hvernig hugs­ar þú um lík­amann?

„Ég hreyfi mig mjög mikið, borða bara góðan og nær­ing­ar­rík­an mat, fer í sund og hugsa vel um húðina.“

Finnst þér þú eyða of miklu eða of litlu í föt?

„Ég hef eytt voða litlu í föt upp á síðkastið. Ég tók ákvörðun fyr­ir sirka tveim­ur árum síðan að hætta að kaupa föt bara til að kaupa föt og eyða meiri tíma í að finna flík­ur sem eru ein­stak­ar, gæðamikl­ar og henta mín­um karakt­er. Stíll­inn minn er líka bú­inn að þró­ast mikið síðustu ár og ég geng mikið bara í sömu föt­un­um sem mér finnst passa mjög vel við mig.

Við hvern tal­arðu um föt?
„Alla sem hafa áhuga á því.“

Ferðu í eitt­hvað sér­stakt þegar þú vilt virðast öfl­ugri?

„Ég fer í grænu krókó­dílakú­reka­stíg­vél­in mín, þau eru svo áber­andi og það heyr­ist svo hátt í þeim þegar ég labba. Það er fátt annað meira vald­efl­andi en að ganga í há­vær­um hæla­skóm.

Hef­ur ein­hver sagt eitt­hvað við þig sem breytti sjálfs­álit­inu?
„Já ör­ugg­lega, lík­leg­ast eitt­hvað já­kvætt sem hef­ur „boostað“ aðeins sjálfs­álitið.“

Hvaða tísku- eða förðun­ar­ráð gaf mamma eða amma þín þér sem þú ferð eft­ir?
„Að það væri skyn­sam­leg­ast að kunna að handsauma sem ein­mitt kom sér vel þegar ég vann sem stílisti.“

Það kom sér vel að kunna að handsauma þegar hún …
Það kom sér vel að kunna að handsauma þegar hún vann sem stílisti. Ljós­mynd/Ú​r einka­safni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda