Segir upp störfum eftir níu ár

Maria Grazia Chiuri.
Maria Grazia Chiuri. Geoffroy Van Der Hasselt/AFP

Ítalski fata­hönnuður­inn Maria Grazia Chiuri er hætt störf­um hjá franska há­tísku­hús­inu Dior eft­ir níu ár. Hún var fyrsta kon­an til að starfa sem list­rænn stjórn­andi hjá Dior. 

Chiuri kom með fem­in­íska sýn í fatalín­ur sín­ar sem end­ur­speglaðist í hverri tísku­sýn­ingu. Það hófst strax með vor- og sum­ar­lín­unni fyr­ir árið 2017 þar sem fyr­ir­sæt­ur klædd­ust hvít­um stutterma­bol­um með slag­orðinu „We Should All Be Fem­in­ists“ eða „Við ætt­um öll að vera fem­iníst­ar.“ Slag­orðið kem­ur úr bók­inni We Should All Be Fem­in­ists eft­ir níg­er­íska höf­und­inn Chimamanda Ngozi Adichie.

„Christian Dior há­tíska til­kynn­ir að Maria Grazie Chiuri hef­ur ákveðið að segja upp störf­um sem list­rænn stjórn­andi há­tísku, tísku- og fylgi­hluta,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu.

Feminíski bolurinn sem Chiuri hannaði seldist afar hratt upp þegar …
Fem­in­íski bol­ur­inn sem Chiuri hannaði seld­ist afar hratt upp þegar hann sást á tískupalli Christian Dior fyr­ir vorið 2017. Skjá­skot/​In­sta­gram

Hef­ur skrifað mik­il­væg­an kafla sög­unn­ar

„Ég færi María Grazia Chiuri mín­ar bestu þakk­ir en hún hef­ur frá komu sinni til Dior, unnið ótrú­legt starf með femín­ísk­um sjón­ar­horn­um og ein­stök­um sköp­un­ar­krafti, allt í anda herra Dior. Þetta gerði henni kleift að hanna afar eft­ir­sókn­ar­verðar fatalín­ur,“ sagði Delp­hine Arnault, for­stjóri Christian Dior.

„Hún hef­ur skrifað mik­il­væg­an kafla í sögu Christian Dior og lagt veru­lega af mörk­um til þess eft­ir­tekt­ar­verða vaxt­ar sem fyr­ir­tækið hef­ur náð auk þess að vera fyrsta kon­an til að leiða hönn­un kven­mannafa­talína.“

Mikl­ar breyt­ing­ar hafa orðið hjá stærstu tísku­hús­um heims síðustu mánuði. Þetta er talið vera vegna erfiðs rekstr­ar­um­hverf­is í lúx­us­fatnaðar- og fylgi­hluta­geir­an­um. Það hef­ur ekki komið fram hver tek­ur við starfi Chiuri. 

Ítalski hönnuður­inn hóf störf hjá Fendi árið 1989 í upp­hafi fer­ils­ins sem tösku­hönnuður. Árið 1999 var hún ráðin til Valent­ino sem hönnuður fylgi­hluta áður en hún fékk stöðuhækk­un sem list­rænn stjórn­andi ásamt Pierpa­olo Piccoli árið 2008. Hún hóf störf hjá Dior árið 2016. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda