Sólin er loks komin hærra á loft og hitastigið farið að sleikja tíu gráðurnar. Meira biður maður nú ekki um. Í tilefni þess eru margir hverjir búnir að dusta rykið af hlaupaskónum og sprikla nú um götur borgarinnar.
Hlaupabakterían virðist hafa breiðst hratt og örugglega milli Íslendinga þetta árið og að því gefnu hefur Smartland tekið saman hugmyndir að flottum hlaupafatnaði sem fer vel saman svo þú getir hlaupið og lúkkað á sama tíma.