Slörið getur gjörbreytt kjólnum

Íris segir sinn uppáhaldsstað vera í brúðarkjólamátuninni.
Íris segir sinn uppáhaldsstað vera í brúðarkjólamátuninni.

Íris Hrönn Hreins­dótt­ir er einn eig­enda brúðar­kjóla­versl­un­ar­inn­ar Lof­orðs og hef­ur starfað í brúðkaups­brans­an­um í um fjór­tán ár. Hún seg­ir perl­ur, slétt efni og slör vera áber­andi í brúðkaup­um árs­ins og það hafi færst í vöxt að brúðir kaupi fleiri en einn kjól fyr­ir til­efnið og skipti um þegar líður á kvöldið.

Íris starfar í öll­um hliðum fyr­ir­tæk­is­ins eins og eig­end­ur lít­illa fyr­ir­tækja þekkja vel. Hún seg­ir upp­á­haldsstaðinn þó alltaf vera í brúðar­kjóla­mát­un­inni því henni fylgi mik­il gleði að geta aðstoðað með valið á drauma­kjóln­um.

Hverju eru kon­ur helst að leita eft­ir fyr­ir brúðkaup sum­ars­ins?

„Við finn­um alltaf að lang­flest­ar brúðir byrja með hug­ann við brúðar­kjól með erm­um en fæst­ar enda í þeim stíl á end­an­um. Brúðirn­ar sem eru að gifta sig í ár óskuðu mikið eft­ir perl­um, stíl­hrein­um kjól­um og áber­andi slör­um,“ seg­ir Íris.

„Við finn­um að perl­ur, slétt efni og ber­ar axl­ir eru stórt atriði fyr­ir árið 2025. Fyr­ir næsta ár mun­um við sjá mikið af stór­um pils­um, fín­gerðum blúnd­um, síkkaðri mitt­is­línu, hlýra­laus­um kjól­um og mynstruðum efn­um. Við sjá­um líka að seinni kjóll­inn er að ryðja sér til rúms þessa stund­ina. Þá eru merki eins og By Mal­ina og Kels­ey Rose með stutta kjóla sem eru að slá í gegn. Þá er jafn­vel hægt að taka stutt­an kjól og yf­ir­pils en það eru sjúk­lega fjöl­breytt­ir og skemmti­leg­ir stíl­ar í gangi núna.“

Brúðirnar í ár óska eftir perlum, stílhreinu efni og áberandi …
Brúðirn­ar í ár óska eft­ir perl­um, stíl­hreinu efni og áber­andi slöri.

Fátt mik­il­væg­ara en und­ir­föt­in

Þið bjóðið einnig upp á mikið af auka­hlut­um fyr­ir kjól­ana og heild­ar­út­litið, hvaða auka­hlut­ir eru þetta helst?

„Okk­ar mark­mið er að vera með allt sem brúðina gæti mögu­lega vantað fyr­ir stóra dag­inn sem teng­ist klæðnaði og fylgi­hlut­um. Við aðstoðum nán­ast hverja ein­ustu brúði með slör og und­ir­föt sem henta við kjól­inn. Slörið er það mik­il­væg­asta að mínu mati þar sem það get­ur gjör­breytt kjóln­um. Slör­in hafa líka svo fal­leg­an til­gang í at­höfn og mynda­töku,“ seg­ir hún.

„Það er síðan fátt mik­il­væg­ara en und­ir­föt sem henta kjóln­um. Við sér­hæf­um okk­ur í bak­laus­um lausn­um og und­ir­föt­um sem henta und­ir alla kjóla. Við erum einnig með gríðarlega vandað úr­val af skóm, skarti, hárskrauti, yf­ir­höfn­um og veskj­um.“

Hvaða auka­hlut­ir eru vin­sæl­ast­ir?

„Það eru Boomba Inserts sem eru efst hjá okk­ur, bæði fyr­ir verðandi brúðir og í raun alla sem vilja smá fyll­ingu og lyft­ingu. Þetta eru púðar sem lím­ast við þig og fatnað sem helst þétt við lík­amann. Límið í þeim er fjöl­nota og end­ist all­an dag­inn og kvöldið.“

Hverju geta hlut­ir eins og þess­ir breytt?

„Fylgi­hlut­ir full­komna út­litið og end­ur­varpa þínum per­sónu­leika. Fyr­ir utan það geta réttu und­ir­föt­in gert það að verk­um að kjóll­inn pass­ar bet­ur og und­ir­strik­ar þannig ennþá bet­ur þínar fal­legu lín­ur.“

Slörið er mikilvægt og getur gjörbreytt heildarútlitinu.
Slörið er mik­il­vægt og get­ur gjör­breytt heild­ar­út­lit­inu.
Í versluninni er tekið á móti verðandi brúðhjónum og hjálpað …
Í versl­un­inni er tekið á móti verðandi brúðhjón­um og hjálpað til með nán­ast allt út­lit­stengt.
Hlýralausir kjólar með ermum eru vinsælir núna.
Hlýra­laus­ir kjól­ar með erm­um eru vin­sæl­ir núna.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda