Svona er golftískan í sumar

Golfarar leita að nýju golfdressi fyrir sumarið.
Golfarar leita að nýju golfdressi fyrir sumarið.

Golfíþrótt­in hef­ur svo sann­ar­lega notið vin­sælda hér á landi und­an­far­in miss­eri og auðvitað miklu leng­ur í þrengri hóp­um. Golfíþrótt­in hef­ur notið vin­sælda hjá fólki sem er hætt að vinna en nú virðast ald­urs­mörk­in vera að fær­ast neðar. Þar sem golf­vell­irn­ir hafa opnað virðast all­ir vera í leit að framúrsk­ar­andi fatnaði til að klæðast á vell­in­um.

Það er ekki nóg að sýna bara góða takta, slá kúl­una af mik­illi list og vera með lága for­gjöf. Allskon­ar skemmti­leg­ir lit­ir verða klár­lega áber­andi á völl­un­um í ár. 

Hér að neðan eru nokkr­ar vel vald­ar flík­ur sem gætu komið að góðum not­um í sum­ar.

Töff vínrauður bolur frá J. Lindberg sem fæst í Erninum …
Töff vín­rauður bol­ur frá J. Lind­berg sem fæst í Ern­in­um golf­versl­un og kost­ar 14.990 kr.
Hvítur polobolur með flottum kraga frá J. Lindberg sem fæst …
Hvít­ur polo­bol­ur með flott­um kraga frá J. Lind­berg sem fæst í Ern­in­um golf­versl­un og kost­ar 18.990 kr.
Fallega grænar golfstuttbuxur frá J. Lindberg sem fást í Kultur …
Fal­lega græn­ar golfstutt­bux­ur frá J. Lind­berg sem fást í Kult­ur og kosta 19.995 kr.
Vínrauður polobolur frá FootJoy sem fæst á Boozt og kostar …
Vín­rauður polo­bol­ur frá FootJoy sem fæst á Boozt og kost­ar 9.059 kr.

Á blíðviðris­degi er mik­il­vægt að vera með góða der­húfu. „Smjörgul­ur“ kem­ur sterk­ur inn í ár og er þessi der­húfa því full­kom­in í golfið í sum­ar.

Ljósgul derhúfa frá Macade sem fæst í Prósjoppunni og kostar …
Ljósgul der­húfa frá Maca­de sem fæst í Pró­sjopp­unni og kost­ar 5.900 kr.

Sól­in læt­ur þó ekki alltaf sjá sig á okk­ar fagra landi en það stopp­ar ekki al­vöru golfara. Því er mik­il­vægt að eiga góðar golfpeys­ur í fata­skápn­um fyr­ir sval­ari daga.

Ljósgul, hálfrennd golfpeysa frá íslenska golfmerkinu Brutta Golf sem kostar …
Ljósgul, hálfrennd golfpeysa frá ís­lenska golf­merk­inu Brutta Golf sem kost­ar 19.990 kr.
Hálfrennd golfpeysa með fallegu hálsmáli frá Ralph Lauren sem fæst …
Hálfrennd golfpeysa með fal­legu háls­máli frá Ralph Lauren sem fæst í Mat­hilda og kost­ar 29.990 kr.
Skrautleg og hlý peysa frá Macade sem fæst í Prósjoppunni …
Skraut­leg og hlý peysa frá Maca­de sem fæst í Pró­sjopp­unni og kost­ar 19.900 kr.

Vertu í stíl við kon­una!

Peysa frá Macade sem fæst einnig í Prósjoppunni og kostar …
Peysa frá Maca­de sem fæst einnig í Pró­sjopp­unni og kost­ar 25.900 kr.

Það þurfa all­ir að eiga eitt bleikt sett í fata­skápn­um fyr­ir sól­rík­ari daga.

Ljósbleik peysa frá J. Lindberg sem fæst í Erninum golfverslun …
Ljós­bleik peysa frá J. Lind­berg sem fæst í Ern­in­um golf­versl­un og kost­ar 24.990 kr.
Ljósbleikt pils frá J. Lindberg sem fæst í Erninum golfverlsun …
Ljós­bleikt pils frá J. Lind­berg sem fæst í Ern­in­um golf­verls­un og kost­ar 11.990 kr.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda