Fimm bestu maskararnir núna

Þessir maskarar eru alltaf vinsælir.
Þessir maskarar eru alltaf vinsælir.

Hvar á að byrja þegar maður kaup­ir sér maskara? Það eru ótal marg­ir kost­ir í boði. Það má segja að þetta sé eins og að velja sér maka; sum­ir velja sér einn og halda sig við þann sama út æv­ina en aðrir eru dug­legri að skipta. 

Það þarf að hafa nokkra hluti í huga þegar þú vel­ur nýj­an maskara. Hvað viltu að hann geri? Sum­ir búa til mikla drama­tík með því að þykkja og lengja en aðrir eru hlut­laus­ari sem hægt er að byggja upp með nokkr­um um­ferðum. 

Ef þú vilt breyta til þá eru hér nokkr­ir góðir sem eru vin­sæl­ir ár eft­ir ár.

Lancomé Lash Idolé

Maskari sem leng­ir hár­in strax og end­ist í um 24 klukku­stund­ir. Burst­inn nær til allra augn­hár­anna og mót­ar þau fal­lega.

Lash Idol maskari frá Lancome. Hann kostar 5.499 kr.
Lash Idol maskari frá Lancome. Hann kost­ar 5.499 kr.

Sky High frá May­bell­ine

Maskari sem gef­ur augn­hár­un­um aukið um­fang og mikla lengd eft­ir aðeins eina um­ferð.

Lash Sensational Sky High maskari frá Maybelline, 3.199 kr.
Lash Sensati­onal Sky High maskari frá May­bell­ine, 3.199 kr.

Lash Clash

Lash Clash-maskar­inn frá Yves Saint Laurent gef­ur allt að 200% meira um­fang og end­ist í allt að 24 klukku­stund­ir.

Lash Clash maskari frá Yves Saint Laurent sem kostar 6.999 …
Lash Clash maskari frá Yves Saint Laurent sem kost­ar 6.999 kr.

Lash Qu­een

Þetta er maskari sem marg­ir treysta á aft­ur og aft­ur. Lash Qu­een gef­ur löng og þétt augn­hár, greiðir vel úr augn­hár­un­um og end­ist all­an dag­inn. 

Lash Queen frá Helena Rubenstein sem kostar 6.999 kr.
Lash Qu­een frá Helena Ru­ben­stein sem kost­ar 6.999 kr.

Lim­it­less frá Ilia

Þetta er eini nátt­úru­legi maskar­inn á list­an­um og er marglaunuð vara. Hann fer langt fram úr vænt­ing­um margra um nátt­úru­leg­an maskara. Hann er auðveld­ur í notk­un og hægt að byggja upp fyr­ir drama­tísk­ara út­lit. Formúl­an moln­ar ekki né smit­ar.

Limitless-maskari frá Ilia, fæst í Nola og kostar 6.490 kr.
Lim­it­less-maskari frá Ilia, fæst í Nola og kost­ar 6.490 kr.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda