Þetta verða mest seldu stuttbuxurnar í sumar

Þegar nokkr­ir dag­ar eru liðnir af júní­mánuði verður að fara að huga að sum­ar­legri klæðnaði, því að þegar góða veðrið mæt­ir viltu verja deg­in­um ut­an­dyra en ekki inni í versl­un­um.

Það er eitt stutt­buxnasnið sem kem­ur til með að vera mjög áber­andi yfir sum­ar­mánuðina. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem þetta snið skýt­ur upp koll­in­um held­ur hef­ur það verið vin­sælt síðustu ár. Nú er hins veg­ar tím­inn til að stökkva á vagn­inn ef þú hef­ur ekki nú þegar fjár­fest í bux­um með þessu sniði.

Sniðinu fylgja marg­ir kost­ir; það er hægt að nota stutt­bux­urn­ar við fínni til­efni því að sniðið er virðulegra en geng­ur og ger­ist og klæðir flesta. Sídd­in á bux­un­um er rétt fyr­ir ofan hné og eru skálm­arn­ar víðar.

Kennd­ar við Bermúda­eyj­ar

Nafnið á stutt­bux­un­um er kennt við Bermúda­eyj­ar í Atlants­hafi. Talið er að þær hafi verið vin­sæll kost­ur upp­haf­lega fyr­ir karl­menn á þeim dög­um þegar það þótti of heitt úti fyr­ir fínni bux­ur. Þeir klædd­ust bux­un­um við hnéháa sokka, fína skyrtu, bindi og jakkafatajakka. Síðar urðu þær vin­sæl­ar á meðal kvenna og barna og voru notaðar í frí­um á suðræn­um slóðum.

Lang­flest­ar út­gáf­ur í versl­un­um núna eru háar í mittið og líkj­ast dragt­ar­bux­um. Einnig er hægt að finna mjög flott­ar út­gáf­ur í galla­efni. Það besta við þess­ar bux­ur er að þú þarft lítið að hugsa út í aðrar flík­ur. Það eina sem þarf er lít­ill hvít­ur hlýra­bol­ur og dragt­ar­jakki til að full­komna út­litið. Einnig má nota þær við stutta gallajakka fyr­ir af­slappaðri til­efni. Þær fara vel með míníma­lísk­um hæla­skóm, san­döl­um og jafn­vel striga­skóm. Í mörg­um til­vik­um er hægt að fá skyrtu eða jakka í stíl í sama efni og þá ertu kom­in með föt sem þú get­ur gripið í á öll­um þeim góðviðris­dög­um sem eft­ir eru.

 

Frá tískusýningu danska tískuhússins Ganni fyrir sumarið 2025.
Frá tísku­sýn­ingu danska tísku­húss­ins Ganni fyr­ir sum­arið 2025. Ljós­mynd/​Ganni
Hvítar hörstuttbuxur frá Sand Copenhagen, fást í Mathildu og kosta …
Hvít­ar hörstutt­bux­ur frá Sand Copen­hagen, fást í Mat­hildu og kosta 34.990 kr.
Stuttbuxur í ljósgulum lit, fást í Zöru og kosta 8.995 …
Stutt­bux­ur í ljósgul­um lit, fást í Zöru og kosta 8.995 kr.
Brúnar stuttbuxur frá Noella, fást í FOU22 og kosta 13.990 …
Brún­ar stutt­bux­ur frá Noella, fást í FOU22 og kosta 13.990 kr.
Kremlitaðar stuttbuxur frá Noella, fást í FOU22 og kosta 13.990 …
Kremlitaðar stutt­bux­ur frá Noella, fást í FOU22 og kosta 13.990 kr.
Ljósar stuttbuxur frá Gestuz, fást í Andrá og kosta 18.990 …
Ljós­ar stutt­bux­ur frá Gest­uz, fást í Andrá og kosta 18.990 kr.
Gallastuttbuxur frá Gestuz, fást í Andrá og kosta 18.990 kr.
Gall­astutt­bux­ur frá Gest­uz, fást í Andrá og kosta 18.990 kr.
Svartar stuttbuxur frá Neo Noir, fást í Companys og Karakter …
Svart­ar stutt­bux­ur frá Neo Noir, fást í Comp­anys og Karakt­er og kosta 9.995 kr.
Gallastuttbuxur frá Boss, fást í Mathildu og kosta 14.990 kr.
Gall­astutt­bux­ur frá Boss, fást í Mat­hildu og kosta 14.990 kr.
Svartar stuttbuxur frá Neo Noir, fást í Companys og Karakter …
Svart­ar stutt­bux­ur frá Neo Noir, fást í Comp­anys og Karakt­er og kosta 9.995 kr.
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda