Flestar í Bestu deildinni eru frá Akureyri

Akureyrarliðið hefur teflt fram 18 uppöldum leikmönnum í Bestu deildinni …
Akureyrarliðið hefur teflt fram 18 uppöldum leikmönnum í Bestu deildinni í ár. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Flestir leikmenn í Bestu deild kvenna í fótbolta á yfirstandandi keppnistímabili eru uppaldir á Akureyri. Alls koma 25 leikmenn í deildinni í ár frá Akureyrarliðunum Þór og KA og flestar spila konurnar með sameiginlegu liði félaganna, Þór/KA.

Átján af þeim 23 konum sem hafa spilað með Þór/KA í fyrstu sjö umferðum Bestu deildarinnar í ár eru uppaldar á Akureyri og sjö til viðbótar leika með öðrum liðum í deildinni.

Af þessum 25 Akureyringum í deildinni eru sextán uppaldar hjá Þór og níu hjá KA.

Í leikjum Akureyrarliðsins á þessu tímabili hafa verið allt að níu uppaldir leikmenn í byrjunarliðinu. Hulda Ósk Jónsdóttir, sem kom frá Völsungi, er eini íslenski leikmaðurinn sem er reglulega í byrjunarliði Þórs/KA og er ekki alin upp á Akureyri. Þetta er hins vegar hennar níunda tímabil með Þór/KA.

Tindastóll með 50 prósent

Þetta er langhæsta hlutfallið af uppöldum leikmönnum hjá liðunum tíu í deildinni en aðeins eitt annað félag nær að vera með 50 prósent uppalda leikmenn. Það er Tindastóll sem hefur teflt fram níu Skagfirðingum af þeim átján sem hafa leikið með liðinu í deildinni það sem af er tímabilinu. Til viðbótar leika þrír Húnvetningar með Tindastóli en þær stúlkur léku með Kormáki í yngri flokkunum.

FH hefur notað næstflesta uppalda leikmenn til þessa á tímabilinu, tíu talsins, en hefur hins vegar notað flesta leikmenn af öllum liðunum, en alls hafa 24 konur komið við sögu hjá Hafnarfjarðarliðinu í sjö leikjum.

Greinin í heild sinn er í Morgunblaðinu í dag og þar má sjá hlutfall uppaldra leikmanna í öllum liðum Bestu deildar kvenna og hvaðan allir leikmenn deildarinnar koma.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert