Selfoss er kominn í fallsæti í 1. deild kvenna eftir tap fyrir Grindavík, 2:1, í Safamýri í kvöld.
Með sigrinum fer Grindavík upp í fjórða sæti deildarinnar með 13 stig en Selfoss er í níunda með níu stig.
Ása Björg Einarsdóttir kom Grindavík yfir en Guðrún Þóra Geirsdóttir jafnaði metin.
Í seinni hálfleik skoraði Dröfn Einarsdóttir sigurmark Grindvíkinga og þar við sat.
Afturelding er komin upp við hlið FHL í fyrsta sæti deildarinnar eftir sigur á ÍR, 4:1, í Mosfellsbænum.
Afturelding er í öðru sæti með 19 stig, jafnmörg og FHL en með verri markatölu. FHL á hins vegar leik til góða.
Hildur Karítas Gunnarsdóttir, Saga Líf Sigurðardóttir og Ariela Lewis skoruðu mörk Aftureldingar en það fjórða var sjálfsmark. Mark ÍR skoraði Linda Eshun.