Óskar Hrafn Þorvaldsson verður yfirmaður knattspyrnumála hjá KR og tekur formlega til starfa þann 1. ágúst næstkomandi.
Óskar tók við sem ráðgjafi knattspyrnudeildar KR í júní en hann lét óvænt af störfum sem þjálfari hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Haugesund í maí.
Óskar mun hafa yfirumsjón með öllu faglegu starfi knattspyrnudeildar, hvort sem er yngri flokka eða meistaraflokka.
Þetta er nýtt starf hjá KR. Rúnar Kristinsson gegndi stöðunni síðast en það var frá 2008-2009 og síðan hefur enginn verið í þessu hlutverki.