Grindavík sótti stigin þrjú til Njarðvíkur þegar liðið vann heimamenn í Njarðvík, 1:0, í 11. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í kvöld.
Grindavík er komin í fjórða sæti deildarinnar með 16 stig en Njarðvík er í öðru sæti með 20 stig.
Sigurmark Grindavíkur skoraði Adam Árni Róbertsson á 83. mínútu leiksins.