Þróttur úr Reykjavík vann sannfærandi sigur á Dalvík/Reyni, 4:1, í 11. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu í Laugardalnum í dag.
Áki Sölvason kom Dalvík/Reyni yfir á 52. mínútu en á 59. mínútu jafnaði Kári Kristjánsson metin, 1:1.
Hlynur Þórhallsson kom Þrótti yfir á 65. mínútu og Kári bætti við sínu öðru marki á 74. mínútu. Hlynur var svo aftur á ferðinni undir blálok leiks og skoraði fjórða mark Þróttar.
ÍBV nálgast toppliðin en Vestmannaeyingar unnu Leikni úr Reykjavík, 1:0, í Vestmannaeyjum í dag.
Sigurmark ÍBV skoraði Vicente Valor á 25. mínútu en á 66. mínútu fékk Arnór Ingi Kristinsson rautt spjald í liði Leiknis.
ÍBV er í þriðja sæti með 19 stig, fimm stigum frá toppnum en Leiknir er tíunda sæti með 12 stig.