Landsliðsmenn veiktust í Tyrklandi

Guðlaugur Victor Pálsson og Stefán Teitur Þórðarson léku ekkert með …
Guðlaugur Victor Pálsson og Stefán Teitur Þórðarson léku ekkert með liðum sínum á Englandi í dag. Ljósmynd/Alex Nicodim

Nokkrir leikmenn íslenska landsliðsins í fótbolta veiktust í kjölfar ferðarinnar til Tyrklands þar sem liðið tapaði fyrir heimamönnum, 3:1, í Þjóðadeildinni síðastliðinn mánudag.

Fótbolti.net greinir frá í kvöld að fimmtán úr íslenska teyminu, leikmenn og starfsfólk, hafi fengið magakveisu eftir Tyrklandsferðina.

Skagamennirnir Stefán Teitur Þórðarson og Arnór Sigurðsson sem leika með Preston og Blackburn í B-deildinni á Englandi voru ekki með liðum sínum í dag vegna veikindanna.

Þá var Guðlaugur Victor Pálsson allan tímann á bekknum hjá Plymouth er liðið vann topplið Sunderland, 3:2, í sömu deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert