22. umferð: Norðanmenn náðu stórum áföngum

Atli Sigurjónsson KR-ingur með boltann í sínum 300. deildaleik, gegn …
Atli Sigurjónsson KR-ingur með boltann í sínum 300. deildaleik, gegn Víkingi. mbl.is/Arnþór Birkisson

Tveir af reynd­ari leik­mönn­um Bestu deild­ar karla í fót­bolta, báðir Norðlend­ing­ar að ætt og upp­runa, náðu þeim áfanga um helg­ina að spila sinn 300. deilda­leik á ferl­in­um.

Atli Sig­ur­jóns­son, kant­maður­inn reyndi hjá KR, lék sinn 300. deilda­leik þegar KR tapaði 3:0 fyr­ir Vík­ingi á föstu­dags­kvöldið en bætti svo við 301. leikn­um gegn Val í gær­kvöld. Atli hef­ur leikið 234 af þess­um leikj­um í efstu deild, þar af 184 fyr­ir KR þar sem hann er orðinn fimmti leikja­hæst­ur í deild­inni frá upp­hafi. Þá lék Atli 33 leiki í deild­inni með Breiðabliki og 17 með Þór, og auk þess 67 leiki með Þór í 1. deild.

Hrann­ar Björn Stein­gríms­son, bakvörður­inn reyndi hjá KA, lék sinn 300. deilda­leik þegar KA tapaði 1:0 fyr­ir ÍA á Akra­nesi. Þar af eru 133 leik­ir með KA í efstu deild en þar er hann nú orðinn fjórði leikja­hæst­ur frá upp­hafi. Hina 167 deilda­leik­ina hef­ur Hrann­ar spilað með KA og Völsungi í 1., 2. og 3. deild.

Hrannar Björn Steingrímsson hefur nú spilað 300 deildaleiki á ferlinum, …
Hrann­ar Björn Stein­gríms­son hef­ur nú spilað 300 deilda­leiki á ferl­in­um, í fjór­um deild­um Íslands­móts­ins. Ljós­mynd/Þ​órir Tryggva­son

Hösk­uld­ur Gunn­laugs­son, fyr­irliði Breiðabliks, lék sinn 200. leik í efstu deild þegar liðið vann HK 5:3 í Kópa­vogs­slagn­um á sunnu­dag­inn, og hélt upp á það með góðu skalla­marki. All­ir 200 leik­ir Hösk­uld­ar í deild­inni eru fyr­ir Breiðablik og hann er þriðji leikmaður fé­lags­ins sem nær þeim leikja­fjölda á eft­ir Andra Rafni Yeom­an (293) og Damir Mum­in­ovic (225).

Höskuldur Gunnlaugsson ánægður eftir sigurinn á HK.
Hösk­uld­ur Gunn­laugs­son ánægður eft­ir sig­ur­inn á HK. mbl.is/Ó​laf­ur Árdal

Í sama leik varð Arnþór Ari Atla­son fyrst­ur í sögu HK til að leika 100 leiki fyr­ir fé­lagið í efstu deild og hann hélt líka upp á þann áfanga með marki. Arnþór var þar með líka fyrst­ur til að skora 20 mörk fyr­ir HK í efstu deild.

Arnþór Ari Atlason er fyrstur HK-inga til að spila 100 …
Arnþór Ari Atla­son er fyrst­ur HK-inga til að spila 100 leiki í deild­inni. mbl.is/Ó​ttar Geirs­son

Emil Atla­son skoraði sitt 60. mark í efstu deild þegar hann gerði sig­ur­mark Stjörn­unn­ar gegn Vestra úr víta­spyrnu, 1:0. Af þeim eru nú 44 fyr­ir Stjörn­una þar sem hann er þriðji marka­hæst­ur frá upp­hafi. Aðeins fjór­ir aðrir af nú­ver­andi leik­mönn­um í deild­inni hafa skorað 60 mörk, þeir Pat­rick Peder­sen (113), Óskar Örn Hauks­son (88), Hilm­ar Árni Hall­dórs­son (68) og Hall­grím­ur Mar Stein­gríms­son (63).

Emil Atlason sækir að marki Vestra í leiknum á sunnudaginn.
Emil Atla­son sæk­ir að marki Vestra í leikn­um á sunnu­dag­inn. mbl.is/Ó​laf­ur Árdal

Þá náðu þrír leik­menn þeim áfanga í 22. um­ferðinni að spila sinn 100. leik í efstu deild hér á landi. Það eru þeir Davíð Ingvars­son úr Breiðabliki, í leikn­um við HK, Karl Friðleif­ur Gunn­ars­son úr Vík­ingi, gegn Fylki í gær­kvöld, og Finn­ur Tóm­as Pálma­son úr KR, gegn Val í gær­kvöld.

Pat­rick Peder­sen er kom­inn í 3.-4. sætið yfir marka­hæstu menn efstu deild­ar karla frá upp­hafi eft­ir að hafa skorað eitt marka Vals í sigr­in­um á KR í gær­kvöld, 4:1. Þetta var 113. mark Pat­ricks í deild­inni og hann jafnaði við Atla Viðar Björns­son sem skoraði 113 mörk fyr­ir FH. Hann jafnaði um leið met Atla í mörk­um fyr­ir eitt fé­lag í deild­inni. Aðeins Tryggvi Guðmunds­son (131) og Ingi Björn Al­berts­son (126) hafa skorað fleiri mörk en þeir Pat­rick og Atli.

Patrick Pedersen er kominn í þriðja til fjórða sæti á …
Pat­rick Peder­sen er kom­inn í þriðja til fjórða sæti á markalista deild­ar­inn­ar. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Vík­ing­ar bætt­ust í þann hóp fé­laga sem hafa fengið 1.000 stig sam­tals í efstu deild karla með sigr­in­um á KR á föstu­dags­kvöldið. Eft­ir að hafa unnið Fylki í gær­kvöld, 6:0, eru stig­in orðin 1.004 tals­ins. Þar með hafa níu fé­lög náð þeim stiga­fjölda frá upp­hafi Íslands­móts­ins árið 1912. Hin eru KR (2.110), Val­ur (2.024), ÍA (1.672), Fram (1.519), FH (1.272), Kefla­vík (1.212), ÍBV (1.192) og Breiðablik (1.091).

Úrslit­in í 22. um­ferð:
KR - Vík­ing­ur R. 0:3 (20. um­ferð)
Fram - FH 3:3
Breiðablik - HK 5:3
ÍA - KA 1:0
Stjarn­an - Vestri 1:0
Fylk­ir - Vík­ing­ur R. 0:6
Val­ur - KR 4:1

Marka­hæst­ir í deild­inni:
16 Vikt­or Jóns­son, ÍA
14 Pat­rick Peder­sen, Val

11 Emil Atla­son, Stjörn­unni
11 Jónatan Ingi Jóns­son, Val

10 Beno­ný Breki Andrés­son, KR
9 Gylfi Þór Sig­urðsson, Val
9 Helgi Guðjóns­son, Vík­ingi R.
8 Ari Sig­urpáls­son, Vík­ingi R.
8 Björn Daní­el Sverr­is­son, FH

8 Danij­el Dej­an Djuric, Vík­ingi R.
8 Hösk­uld­ur Gunn­laugs­son, Breiðabliki
8 Valdi­mar Þór Ingi­mund­ar­son, Vík­ingi R.
8 Tryggvi Hrafn Har­alds­son, Val
7 Sig­urður Bjart­ur Halls­son, FH

6 Arnþór Ari Atla­son, HK
6 Atli Þór Jón­as­son, HK
6 Guðmund­ur Magnús­son, Fram
6 Hall­grím­ur Mar Stein­gríms­son, KA
6 Ísak Snær Þor­valds­son, Breiðabliki
6 Kjart­an Kári Hall­dórs­son, FH
6 Ni­kolaj Han­sen, Vík­ingi R. 
6 Vikt­or Karl Ein­ars­son, Breiðabliki

Næstu leik­ir:
Vík­ing­ur - FH
Breiðablik - ÍA
Val­ur - Stjarn­an
KA - HK
Fram - Fylk­ir
KR - Vestri

Leikið er dag­ana 22. til 24. sept­em­ber en Vík­ing­ur og KA mæt­ast í bikar­úr­slita­leikn­um 21. sept­em­ber þannig að þeirra leik­ir verða vænt­an­lega þann 24.

mbl.is

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert

Íslenski fótboltinn

Meira
L U J T Mörk +/- Stig
1 Frakkland 5 5 0 0 12:2 10 15
2 Noregur 5 1 2 2 3:5 -2 5
3 Ísland 5 0 4 1 6:7 -1 4
4 Sviss 5 0 2 3 4:11 -7 2
30.05 Frakkland 4:0 Sviss
30.05 Noregur 1:1 Ísland
08.04 Noregur 0:2 Frakkland
08.04 Ísland 3:3 Sviss
04.04 Sviss 0:2 Frakkland
04.04 Ísland 0:0 Noregur
25.02 Frakkland 3:2 Ísland
25.02 Noregur 2:1 Sviss
21.02 Frakkland 1:0 Noregur
21.02 Sviss 0:0 Ísland
03.06 18:00 Ísland : Frakkland
03.06 18:00 Sviss : Noregur
urslit.net
Fleira áhugavert