ÍA vann Breiðablik í úrslitaleik bikarkeppni KSÍ í 2. flokki karla í fótbolta gær en leikið var á Kópavogsvelli. Lokatölur urðu 3:2 í spennandi leik.
Jón Breki Guðmundsson kom ÍA yfir á sextándu mínútu og staðan í hálfleik var 1:0 fyrir Skagamenn. Atli Þór Gunnarsson jafnaði metin fyrir Breiðablik í upphafi síðari hálfleiks en Börkur Bernhard Sigmundsson kom ÍA í 2:1 einungis tveimur mínútum síðar og Axel Freyr Ívarsson kom ÍA í 3:1 á 56. mínútu.
Atli Þór minnkaði muninn í 3:2 þegar fimmtán mínútur lifðu leiks en lengra komust Blikar ekki og Skagamenn héldu út.