Þetta er sturlað

Daníel fagnar vel og innilega með liðsfélögum sínum í lokin.
Daníel fagnar vel og innilega með liðsfélögum sínum í lokin. mbl.is/Ólafur Árdal

„Þetta er sturlað,“ sagði KA-maðurinn Daníel Hafsteinsson eftir að hann varð bikarmeistari í fótbolta með uppeldisfélaginu í dag með sigri á Víkingi, 2:0, í bikarúrslitum á Laugardalsvelli.

„Þetta er ótrúlega gaman og verður bara skemmtilegra með kvöldinu held ég,“ bætti hann við.

KA var með 1:0 forystu í hálfleik og skoraði svo í blálok uppbótartímans. Daníel leið vel á meðan á leik stóð.

„Mér leið mjög vel. Leikplanið gekk mjög vel upp og mér leið vel á miðjunni þar sem ég var að spila. Auðvitað var maður samt smá stressaður því Víkingarnir hafa oft skorað seint á móti okkur í gegnum árin.

Þetta hefur verið besta liðið síðustu fimm ár eða svo. Það er geðveikt að vinna þetta lið sem er búið að vera fáránlega gott síðustu ár,“ sagði Daníel

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert