Breiðablik hafnaði tilboði

Ásgeir Helgi Orrason og Kristján Atli Marteinsson í leik Keflavíkur …
Ásgeir Helgi Orrason og Kristján Atli Marteinsson í leik Keflavíkur og ÍR í síðasta mánuði. mbl.is/Eyþór Árnason

Breiðablik hefur hafnað tilboði Keflavíkur í varnarmanninn unga Ásgeir Helga Orrason, sem stóð sig með stakri prýði að láni hjá síðarnefnda liðinu á nýafstöðnu tímabili þess.

Ásgeir Helgi er 19 ára gamall miðvörður og varnartengiliður sem lék 24 leiki fyrir Keflavík í 1. deildinni á tímabilinu og skoraði í þeim tvö mörk.

Keflavík vildi ólm festa kaup á honum en Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, sagði í samtali við Fótbolta.net að félagið hafi hafnað tilboðinu.

Það sé vegna þess að Ásgeir Helgi sé vel inni í myndinni fyrir næsta tímabil, en hann er samningsbundinn Breiðabliki út tímabilið 2027.

Auk þess komi ekki til greina að selja Ásgeir Helga innanlands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert