Valur og Breiðablik mætast í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil kvenna í fótbolta í 23. og síðustu umferð Bestu deildarinnar á Hlíðarenda klukkan 16.15.
Fylgst er með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.
Breiðablik er með 60 stig á toppi deildarinnar og Valur 59 og Blikakonum nægir því jafntefli til að hreppa meistaratitilinn. Valskonur þurfa hins vegar að knýja fram sigur til að verða Íslandsmeistarar fjórða árið í röð og þá myndu þær jafnframt vinna tvöfalt á þessu tímabili eftir að hafa unnið Breiðablik í úrslitaleik bikarkeppninnar í ágúst.