23. umferð: Kveður með stórum áfanga

Ásta Eir Árnadóttir í lokaleik sínum á laugardaginn þegar Breiðablik …
Ásta Eir Árnadóttir í lokaleik sínum á laugardaginn þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari. mbl.is/Ólafur Árdal

Ásta Eir Árna­dótt­ir, fyr­irliði Breiðabliks, til­kynnti í gær að hún hefði ákveðið að leggja skóna á hill­una, dag­inn eft­ir að hún lyfti Íslands­meist­ara­skild­in­um eft­ir úr­slita­leik­inn gegn Val í lokaum­ferð Bestu deild­ar kvenna í fót­bolta á laug­ar­dag­inn.

Ásta kvaddi með því að ná virki­lega stór­um áfanga en á laug­ar­dag­inn varð hún önn­ur kon­an í sögu Breiðabliks sem spil­ar 300 móts­leiki fyr­ir fé­lagið.

Þar af eru 176 leik­ir í efstu deild og þar er hún næst­leikja­hæst á eft­ir Sigrúnu Ótt­ars­dótt­ur sem lék 178 leiki fyr­ir Breiðablik í deild­inni á sín­um tíma. Sigrún lék hins veg­ar 257 móts­leiki í heild en það leikja­met hjá fé­lag­inu á Fann­dís Friðriks­dótt­ir, nú­ver­andi Valskona, sem spilaði 316 móts­leiki fyr­ir Kópa­vogs­fé­lagið.

Sandra María Jessen varð marka­drottn­ing deild­ar­inn­ar með 22 mörk og var í raun búin að tryggja sér þann titil nokkru fyr­ir móts­lok en hún skoraði tíu mörk­um meira en næsti leikmaður, Jor­dyn Rhodes hjá Tinda­stóli. Þetta er hæsta marka­skor leik­manns í deild­inni í tíu ár, eða síðan Harpa Þor­steins­dótt­ir skoraði 27 mörk fyr­ir Stjörn­una árið 2014.

Úrslit­in í 23. um­ferð:

Þór/​KA - Vík­ing­ur R. 0:1
FH - Þrótt­ur R. 0:3
Val­ur - Breiðablik 0:0

Marka­hæst­ar:
22 Sandra María Jessen, Þór/​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​​KA
12 Jor­dyn Rhodes, Tinda­stóli
11 Vig­dís Lilja Kristjáns­dótt­ir, Breiðabliki
11 Andrea Rut Bjarna­dótt­ir, Breiðabliki
9 Sam­an­tha Smith, Breiðabliki
8 Agla María Al­berts­dótt­ir, Breiðabliki

8 Jasmín Erla Inga­dótt­ir, Val
8 Katrín Ásbjörns­dótt­ir, Breiðabliki
8 Shaina Ashouri, Vík­ingi
7 Am­anda Andra­dótt­ir, Val

7 Hildigunn­ur Ýr Bene­dikts­dótt­ir, FH
7 Úlfa Dís Úlfars­dótt­ir, Stjörn­unni
6 Birta Georgs­dótt­ir, Breiðabliki

6 Br­eu­kelen Wood­ard, FH
6 Elísa Bríet Björns­dótt­ir, Tinda­stóli
6 Fann­dís Friðriks­dótt­ir, Val
6 Ísa­bella Sara Tryggva­dótt­ir, Val
6 Linda Líf Boama, Vík­ingi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert