Um þúsund Walesverjar á Laugardalsvelli

Stuðningsmenn Íslands fá samkeppni í stúkunni gegn Wales.
Stuðningsmenn Íslands fá samkeppni í stúkunni gegn Wales. mbl.is/Árni Sæberg

Um eitt þúsund Walesverjar verða í stúkunni á Laugardalsvelli er Ísland og Wales eigast við í Þjóðadeild karla í fótbolta á föstudaginn kemur.

Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu KSÍ. Ísland mætir Wales á föstudagskvöldið og svo Tyrklandi í sömu keppni á mánudag eftir viku.

Alls er búið að selja rétt rúmlega 4.000 miða á leikinn við Wales og tæplega 2.000 miða á leikinn við Tyrkland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert