23 sem fara til Bandaríkjanna

Íslenska landsliðið er á leið á EM næsta sumar og …
Íslenska landsliðið er á leið á EM næsta sumar og leikirnir í Bandaríkjunum eru liður í undirbúningnum. Arnþór Birkisson

Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðsins í knattspyrnu, hefur tilkynnt hópinn sem fer til Bandaríkjanna en þar leikur Ísland tvo vináttulandsleiki gegn Ólympíumeisturunum síðar í þessum mánuði.

Leikið verður í Austin í Texas að kvöldi 24. október og í Nashville í Tennessee að kvöldi 27. október.

Aðeins ein breyting er á hópnum frá leikjunum í sumar. Sædís Rún Heiðarsdóttir frá Vålerenga í Noregi er með á ný eftir að hafa misst af síðustu fjórum landsleikjum vegna meiðsla og hún kemur í stað Kristínar Dísar Árnadóttur.

Hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:
11/0 Telma Ívarsdóttir, Breiðabliki
11/0 Cecilía Rán Rúnarsdóttir, Inter Mílanó
  7/0 Fanney Inga Birkisdóttir, Val

Varnarmenn:
128/11 Glódís Perla Viggósdóttir, Bayern München
65/1 Ingibjörg Sigurðardóttir, Bröndby
41/1 Guðrún Arnardóttir, Rosengård
32/0 Guðný Árnadóttir, Kristianstad
12/1 Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Bröndby
  9/0 Sædís Rún Heiðarsdóttir, Vålerenga
  6/1 Natasha Anasi, Val

Miðjumenn:
47/6 Alexandra Jóhannsdóttir, Fiorentina
43/9 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, Leverkusen
41/4 Selma Sól Magnúsdóttir, Rosenborg
18/2 Hildur Antonsdóttir, Madrid CFF
12/1 Berglind Rós Ágústsdóttir, Val
  1/0 Katla Tryggvadóttir, Kristianstad

Sóknarmenn:
43/6 Sandra María Jessen, Þór/KA
40/12 Sveindís Jane Jónsdóttir, Wolfsburg
40/6  Hlín Eiríksdóttir, Kristianstad
20/2 Amanda Andradóttir, Twente
16/2 Diljá Ýr Zomers, OH Leuven
  6/1 Bryndís Arna Níelsdóttir, Växjö
  2/0 Emilía Kiær Ásgeirsdóttir, Nordsjælland

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert