Gylfi æfði í hádeginu (myndir)

Gylfi Þór Sigurðsson með boltann á æfingunni í Kaplakrika.
Gylfi Þór Sigurðsson með boltann á æfingunni í Kaplakrika. Ljósmynd/Anton Brink

Líkurnar á því að Gylfi Þór Sigurðsson verði klár í slaginn með íslenska landsliðinu í knattspyrnu gegn Wales á Laugardalsvellinum á föstudagskvöldið virðast hafa aukist.

Gylfi missti af leik Valsmanna gegn Breiðabliki í Bestu deildinni á sunnudagskvöldið vegna bakmeiðsla sem hafa hrjáð hann í nokkurn tíma. Hann var hins  vegar á landsliðsæfingu í gær og aftur í hádeginu í dag þegar liðið æfði á blandaða grasi FH-inga á æfingasvæði þeirra í Kaplakrika.

Æft var þar til að hlífa Laugardalsvellinum fyrir leikinn á föstudagskvöldið en það er þriðji leikur Íslands í Þjóðadeildinni á þessu hausti.

Anton Brink tók meðfylgjandi myndir af Gylfa og fleirum á æfingunni í dag.

Gylfi Þór Sigurðsson á æfingunni í Kaplakrika.
Gylfi Þór Sigurðsson á æfingunni í Kaplakrika. Ljósmynd/Anton Brink
Arnór Ingvi Traustason og Jóhann Berg Guðmundsson í Kaplakrika í …
Arnór Ingvi Traustason og Jóhann Berg Guðmundsson í Kaplakrika í dag. Ljósmynd/Anton Brink
Ljósmynd/Anton Brink
Mikael Egill Ellertsson, leikmaður Venezia á Ítalíu, á fullri ferð …
Mikael Egill Ellertsson, leikmaður Venezia á Ítalíu, á fullri ferð í Kaplakrika. Ljósmynd/Anton Brink
Ljósmynd/Anton Brink
Ljósmynd/Anton Brink
Ljósmynd/Anton Brink
Ljósmynd/Anton Brink
Ljósmynd/Anton Brink
Ljósmynd/Anton Brink
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert