Framlengdi þrátt fyrir fall

Anita Lind Daníelsdóttir leikur áfram í Keflavík.
Anita Lind Daníelsdóttir leikur áfram í Keflavík. mbl.is/Ólafur Brink

Knattspyrnukonan Anita Linda Daníelsdóttir hefur framlengt samning sinn við uppeldisfélagið Keflavík til ársins 2027.

Mun Anita því vera áfram í herbúðum Keflavíkur, þrátt fyrir að liðið hafi fallið úr Bestu deildinni á liðinni leiktíð.

Hún hefur leikið 88 leiki með Keflavík í efstu deild og skorað í þeim 10 mörk. Þá hefur hún gert 23 mörk í 64 leikjum í 1. deild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert