Hvor var hungraðri

Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks.
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks. mbl.is/Kristinn Steinn

„Mér fannst allt velta á hvor var hungraðri, hvor vildi meira og það skein á leik okk­ar í dag,“ sagði Hösk­uld­ur Gunn­laugs­son, fyr­irliði Breiðabliks, eft­ir 3:0-sig­ur á Vík­ing­um í Vík­inni í kvöld þegar fram fór loka­leik­ur Íslands­móts karla í fót­bolta.  

„Við höf­um horft upp á Vík­ing í síðustu leikj­um með ótrú­lega end­ur­komu svo það var ekk­ert hægt að slaka á fyrr en dóm­ar­inn flautaði til leiks­loka, bætti fyr­irliðinn við en líka að sín­ir menn hefðu verið viðbún­ir.“

„Við vor­um með alls kyns til­finn­ing­ar fyr­ir þenn­an leik en fyrst og fremst var það hung­ur í góð úr­slit.  Þjálf­arat­eymi okk­ar lagði leik­inn upp al­veg upp í tíu og það var meiri­hátt­ar gott al­veg frá byrj­un.  Við gáf­um fá færi á okk­ur en það kom fyr­ir að Vík­ing­ar með sína gæðal­eik­menn opnuðu press­una okk­ar en heilt yfir fannst mér við vera sterk­ir og lík­am­lega sterk­ari í dag.“

Fyr­irliðinn var ekk­ert að spá í fram­haldið strax eft­ir leik­inn.  „Við ætl­um núna að taka það sem við höf­um verið að gera enn lengra, það má ým­is­legt bæta en maður nenn­ir ekk­ert að vera pæla í því ein­mitt núna al­veg strax held­ur fagna og njóta,“ sagði Hösk­uld­ur að lok­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert