Frederik Schram á förum frá Íslandi

Frederik Schram spilar ekki á Íslandi á næstunni.
Frederik Schram spilar ekki á Íslandi á næstunni. Ljósmynd/Kristín Þórhallsdóttir

Markvörðurinn Frederik Schram mun ekki spila áfram á Íslandi en hann þakkaði fyrir sig í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram.

Frederik hefur leikið með Val í tvö og hálft ár en samningur hans við félagið rann út um nýliðin mánaðarmót.

Markvörðurinn var orðaður við FH og KR en hann hefur nú staðfest að hann muni halda út fyrir landsteinana. Hann hefur verið sterklega orðaður við endurkomu til Danmerkur og þá til liðs við sitt gamla félag Roskilde.

„Takk fyrir síðustu árin á Íslandi. Það hefur verið frábært að spila fyrir Val og við fjölskyldan höfum notið þess að búa á Íslandi og erum þakklát fyrir minningarnar sem skapast hafa hér. Áfram Valur, Áfram Hærra,“ skrifaði Frederik á Instagram

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert