Mættu hlekkjalausir í úrslitaleikinn

„Stjörnuleikurinn var mjög erfiður á margan hátt því þar höfðum við öllu að tapa,“ sagði Íslandsmeistarinn og knattspyrnumaðurinn Höskuldur Gunnlaugsson í Dagmálum.

Höskuldur varð Íslandsmeistari í annað sinn á dögunum með uppeldisfélagi sínu Breiðabliki eftir sigur gegn Víkingi úr Reykjavík í Fossvoginum en Höskuldur hefur verið fyrirliði Breiðabliks frá árinu 2020.

Löng bið í fjögur ár

Blikar unnu mjög sannfærandi sigur í úrslitaleiknum á Víkingsvelli, 3:0, og voru sterkari aðilinn frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu.

„Þar hefðum við getað misst frá okkur úrslitaleikinn, leikinn sem allir voru búnir að bíða eftir í fjögur ár,“ sagði Höskuldur.

„Maður fann það á mönnum að þeir voru í smá hlekkjum en við gerðum mjög vel með því að vinna þann leik sem var mjög sterkt, farandi inn í lokaleikinn. Frá því að sá leikur var flautaður af fann maður það hjá sjálfum sér og öllum í liðinu að við gátum farið hlekkjalausir inn í úrslitaleikinn.

Við sóttum í „keyra yfir andstæðinginn-hugmyndafræðina“ og sú lína var lögð átta dögum fyrir úrslitaleikinn. Menn fóru ekki út af þeirri línu og um leið og úrslitaleikurinn var flautaður á þá fann maður það strax að við vorum með þá,“ sagði Höskuldur meðal annars.

Viðtalið við Höskuld í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Arnór Gauti Jónsson og Gunnar Vatnhamar eigast við í úrslitaleiknum …
Arnór Gauti Jónsson og Gunnar Vatnhamar eigast við í úrslitaleiknum á Víkingsvelli. mbl.is/Hákon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert