Gifti sig á hóteli landsliðsins

Jóhann Berg Guðmundsson kann vel við sig á Spáni.
Jóhann Berg Guðmundsson kann vel við sig á Spáni. mbl.is/Jóhann Ingi

Jóhann Berg Guðmundsson kann afar vel við sig á Spáni og sérstaklega hótelinu sem íslenska landsliðið í fótbolta gisti á í nágrenni við Alicante í undirbúningi fyrir leikina við Svartfjallaland og Wales í Þjóðadeildinni.

„Ég á frábærar minningar héðan. Ég gifti mig á þessu hóteli og átti tvo yndislega daga hérna með fjölskyldu og vinum á sínum tíma. Það er alltaf gaman að koma hingað aftur.

Ég er svolítið tengdur þessu svæði. Ég er oft hérna rétt hjá og fæ að nota æfingasvæðið til að halda mér í standi á sumrin,“ sagði Jóhann við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka