Guðlaugur Victor Pálsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, leikur undir stjórn Wayne Rooney hjá enska B-deildarliðinu Plymouth. Rooney átti gríðarlega farsælan feril sem leikmaður og lék lengi með Manchester United og var fyrirliði enska landsliðsins.
„Það er mjög fínt að spila fyrir hann. Ég þekki hann og hans starfsfólk. Hann er þessi gamaldags breski þjálfari. Starfsfólkið hans sér um æfingarnar og þetta taktíska.
Hann er meira að þjálfa maður á mann, þótt hann sé alltaf á æfingasvæðinu. Hann er stjórinn og svo er hann með þjálfarana í kringum sig,“ sagði Victor um Rooney, sem er stórt nafn á Englandi.
„Við finnum hvað hann er stór. Alls staðar sem við förum er fólk að bíða eftir honum. Hann er eitt stærsta nafnið sem til er í enskum fótbolta,“ sagði Guðlaugur.