Húsvíkingurinn samdi í Árbænum

Guðrún Þóra Geirsdóttir er komin til Fylkis frá Selfossi.
Guðrún Þóra Geirsdóttir er komin til Fylkis frá Selfossi. Ljósmynd/Fylkir

Knattspyrnukonan Guðrún Þóra Geirsdóttir er orðin leikmaður Fylkis. Hún kemur til Fylkis frá Selfossi og gerir tveggja ára samning við Árbæjarfélagið.

Guðrún, sem er Húsvíkingur, hóf meistaraflokksferilinn með Völsungi á heimaslóðum. Hún skipti síðan yfir til Selfoss árið 2021.

Hún hefur skorað eitt mark í 17 leikjum í efstu deild og sex mörk í 31 leik í 1. deild. Fylkir leikur í 1. deild á komandi tímabili eftir fall úr Bestu deildinni á árinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert