Víkingurinn eftirsóttur í Póllandi

Gísli Gottskálk Þórðarson er eftirsóttur.
Gísli Gottskálk Þórðarson er eftirsóttur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knattspyrnumaðurinn ungi Gísli Gottskálk Þórðarson er eftirsóttur í Póllandi og hafa Lech Poznan og Rakow bæði lagt fram tilboð í miðjumanninn. Þá hefur hann einnig verið orðaður við Legia frá Varsjá.

Przeglad Sportowy greinir frá. Pólski miðilinn segir sænska félagið Hammarby einnig hafa áhuga á Gísla, sem og félög frá Danmörku og Noregi. Leikmaðurinn er enn aðeins tvítugur. 

Fossvogsfélagið vill fá á milli 500 og 600 þúsund evrur fyrir Gísla, sem var fastamaður í Víkingsliðinu á liðnu ári og lék vel í Sambandsdeild Evrópu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka