Líklegast er að heimaleikur Víkings gegn Panathinaikos frá Grikklandi í umspili Sambandsdeildar karla í fótbolta fari fram í Farum í Danmörku.
Fótbolti.net segir í dag að Víkingar séu í viðræðum við úrvalsdeildarfélagið Nordsjælland, sem hefur aðsetur í Farum, í útjaðri Kaupmannahafnar.
Áður hafði komið fram að líklegast væri að Víkingar myndu spila heimaleikinn í nágrenni Kaupmannahafnar.
Nordsjælland er með gervigras á sínum leikvangi en það er áhersluatriði hjá Víkingum að spila á slíkum velli.
Farum Park, eða „Right to Dream Park“ eins og hann hefur verið nefndur undanfarin ár, rúmar 9.800 áhorfendur í sæti, eða nánast jafnmarga og Laugardalsvöllurinn gerir í dag.
Farum er 20 þúsund manna bær í norðvesturkanti Kaupmannahafnar, í um 20 km fjarlægð frá miðborg Kaupmannahafnar og þangað er aðeins um 20 mínútna keyrsla frá flugvellinum á Kastrup.
Leikirnir við Panathinaikos fara fram fimmtudagana 13. og 20. febrúar, sá síðari í Aþenu.