Erlenda nafnið á blaði KSÍ opinberað

Bo Henriksen er að gera góða hluti í Þýskalandi og …
Bo Henriksen er að gera góða hluti í Þýskalandi og fundaði með KSÍ í síðustu viku. AFP/Thomas Lienzle

Danski knattspyrnuþjálfarinn Bo Henriksen, stjóri Mainz í þýsku 1. deildinni, er erlenda nafnið sem var á lista hjá Knattspyrnusambandi Íslands, KSÍ, í leit að nýjum þjálfara karlalandsliðsins.

Henriksen er Íslandsvinur enda lék hann hér á landi um tveggja ára skeið og það með þremur liðum; Val og Fram sumarið 2005 og ÍBV sumarið 2006. Skoraði hann sjö mörk í 18 leikjum í efstu deild og þrjú mörk í fimm bikarleikjum.

Danski miðillinn B.T. greinir frá því að Henriksen hafi komið á fund KSÍ í síðustu viku til þess að ræða möguleikann á því að taka við starfinu.

Honum hefur gengið frábærlega með Mainz á tímabilinu þar sem liðið er í fimmta sæti, aðeins tveimur stigum frá þriðja sæti og í harðri baráttu um Evrópusæti.

Bo fór beint í þjálfun eftir Íslandsdvölina, tók við Brönshöj árið 2006 og þjálfaði þar í átta ár og síðan Horsens í sex ár. Eftir eitt tímabil með Midtjylland fór hann til Sviss og stýrði þar liði Zürich í tvö ár en hætti þar til að taka við Mainz í febrúar 2024 og náði að forða liðinu frá falli úr þýsku deildinni um vorið.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings úr Reykjavík, er talinn líklegastur til þess að taka við sem landsliðsþjálfari en mbl.is greindi frá því fyrr í dag að KSÍ hefði hafið viðræður við félagið en Arnar á eitt ár eftir af samningi sínum við Víking.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert