Arnar Gunnlaugsson ráðinn þjálfari karlalandsliðsins

Arnar Gunnlaugsson er tekinn við íslenska landsliðinu.
Arnar Gunnlaugsson er tekinn við íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, samþykkti á fundi sínum í kvöld að ráða Arnar Gunnlaugsson sem þjálfara A-landsliðs karla í knattspyrnu.

Arnar, sem er Skagamaður að upplagi og verður 52 ára á árinu, hefur verið þjálfari meistaraflokks karla hjá Víkingi við góðan orðstír frá árinu 2019 og unnið tvo Íslandsmeistaratitla og fjóra bikarmeistaratitla á þeim tíma, ásamt því að vera kominn með Víking í umspil um sæti í sextán liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu.

Hann er knattspyrnuáhugafólki einnig að góðu kunnur sem leikmaður, enda lék hann 32 A-landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim þrjú mörk, auk þess að leika og skora fyrir öll yngri landsliðin.  

Arnar er uppalinn hjá ÍA og lék sem leikmaður flesta leiki sína hérlendis með liði Skagamanna, en lék einnig með KR, FH, Fram, Val og Haukum og skoraði 82 mörk í 162 leikjum í efstu deild.

Á atvinnumannaferli sínum erlendis lék Arnar í Hollandi, Þýskalandi, Frakklandi, Englandi og Skotlandi. Hann lék samtals 339 deildaleiki á ferlinum, heima og erlendis, og skoraði í þeim 138 mörk.

Fyrstu leikir íslenska landsliðsins undir stjórn Arnars verða umspilsleikir við Kósovó í mars um sæti í B-deild Þjóðadeildar UEFA. Fyrri leikurinn verður á Fadil Vokrri Stadium í Pristina 20. mars og seinni leikurinn á leikvangi Murcia á Spáni, Stadium Enrique Roca, 23. mars.

Fullur tilhlökkunar

„Við erum mjög ánægð með niðurstöðuna. Það eru spennandi tímar framundan hjá íslenska landsliðinu og krefjandi verkefni fyrir nýjan þjálfara í mars, sem Arnar byrjar strax að undirbúa. Við höfum mikla trú á Arnari og hlökkum til að vinna með honum næstu árin, og vonandi sem lengst,“ er haft eftir Þorvaldi Örlygssyni, formanni KSÍ, í tilkynningu sambandsins.

„Ég er auðvitað bara fullur tilhlökkunar að takast á við þetta spennandi og krefjandi verkefni. Það er mikill heiður og líka mikil ábyrgð sem fylgir því að vera landsliðsþjálfari Íslands. Ég er klár í það verkefni,“ er haft eftir Arnari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert