Davíð Snorri Jónasson verður aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu, við hlið Arnars Gunnlaugssonar.
Arnar skýrði frá þessu á fréttamannafundi sem nú stendur yfir í Laugardalnum en Arnar var í gærkvöld ráðinn þjálfari landsliðsins.
Davíð kom inn í þjálfarateymi landsliðsins með Åge Hareide á síðasta ári, eftir að hafa áður þjálfað 21-árs landslið Íslands.
Arnar kvaðst verða með óbreytt þjálfarateymi frá því sem var hjá Åge Hareide, að því undanskildu að Sölvi Geir Ottesen, aðstoðarþjálfari hans hjá Víkingi, verður ekki með föstu leikatriðin eins og hann var með í síðustu leikjum Norðmannsins.
„Sölvi er hér með rekinn, fyrirgefðu Sölvi!" sagði Arnar á fundinum.
„Sölvi verður væntanlega næsti þjálfari Víkings og þar með gengur ekki upp að hann verði hér í Laugardalnum. Það er ekki hægt og ég vona að allir skilji það. En þá er sérfræðingur í föstum leikatriðum það eina sem vantar í þjálfarateymið hjá mér," sagði Arnar.