Knattspyrnukonan unga Embla Katrín Oddsteinsdóttir er komin til Fylkis frá Selfossi. Hún gerir tveggja ára samning við Árbæjarfélagið.
Embla, sem er 18 ára, var einn besti leikmaður Selfoss á síðustu leiktíð en gat ekki komið í veg fyrir fall úr 1. og niður í 2. deild.
Fylkiskonur féllu úr Bestu deildinni og niður í 1. deild á sama tíma. Leikmaðurinn spilaði 17 leiki í 1. deild með Selfoss á síðustu leiktíð.