Arnar: „Hann er bara lygari“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    „Þú kemst ekk­ert hjá því að fylgj­ast með umræðunni,“ sagði Arn­ar Gunn­laugs­son, nýráðinn þjálf­ari ís­lenska karla­landsliðsins í knatt­spyrnu, í Dag­mál­um.

    Arn­ar, sem er 51 árs gam­all, var ráðinn landsliðsþjálf­ari þann 15. janú­ar eft­ir að hafa stýrt Vík­ingi úr Reykja­vík frá ár­inu 2018 en liðið varð tví­veg­is Íslands­meist­ari und­ir stjórn Arn­ars og fjór­um sinn­um bikar­meist­ari.

    Vilt að það sé talað vel um þig

    Arn­ar fylg­ist vel með fjöl­miðlum og hef­ur alltaf gert en hann á að baki far­sæl­an at­vinnu­manna­fer­il áður en hann gerðist þjálf­ari.

    „Hver sá sem er í þannig starfi, þjálf­ari eða leikmaður, og seg­ist ekki fylgj­ast með fjöl­miðlum; hann er bara lyg­ari,“ sagði Arn­ar.

    „Það er hé­gómi í öll­um okk­ar aðgerðum í líf­inu og þú vilt að það sé talað vel um þig. Þú fylg­ist vel með því og ef það er talað illa um þig læt­ur öll fjöl­skyld­an þig vita af því,“ sagði Arn­ar meðal ann­ars.

    Viðtalið við Arn­ar í heild sinni má nálg­ast með því að smella hér eða á hlekk­inn hér fyr­ir ofan.

    Arnar Gunnlaugsson.
    Arn­ar Gunn­laugs­son. mbl.is/​Karítas
    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert