Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu mætir Serbíu í vináttulandsleik í Stara Pazova í Serbíu þann 27. júní í sumar.
Þetta verður lokaleikur liðsins fyrir Evrópumótið í Sviss en þar leikur liðið fyrst gegn Finnlandi í Thun fimm dögum síðar, eða miðvikudaginn 2. júlí.
Ísland og Serbía mættust á sama stað í umspili Þjóðadeildarinnar í febrúar á síðasta ári. Sá leikur endaði 1:1 en völlurinn er í miðstöð serbneska knattspyrnusambandsins í Stara Pazova, skammt frá Belgrad.
Það er í eina skiptið í átta viðureignum sem Íslandi hefur ekki tekist að sigra Serbíu en fjórum dögum síðar vann íslenska liðið seinni leik þjóðanna, 2:1, á Kópavogsvellinum og hélt með því sæti sínu í A-deildinni.
Þar með eru í það minnsta tíu leikir framundan hjá íslenska liðinu næstu fimm mánuðina. Leikjadagskrá landsliðsins er þannig:
21. febrúar: Sviss - Ísland, Þjóðadeildin
25. febrúar: Frakkland - Ísland, Þjóðadeildin
4. apríl: Ísland - Noregur, Þjóðadeildin
8. apríl: Ísland - Sviss, Þjóðadeildin
30. maí: Noregur - Ísland, Þjóðadeildin
3. júní: Ísland - Frakkland, Þjóðadeildin
27. júní: Serbía - Ísland, vináttulandsleikur
2. júlí: Finnland - Ísland á EM í Sviss
6. júlí: Sviss - Ísland á EM í Sviss
10. júlí: Noregur - Ísland á EM í Sviss