Blikar fá markvörð frá Írlandi

Breiðablik er komið með bandarískan markvörð.
Breiðablik er komið með bandarískan markvörð. mbl.is/Arnþór Birkisson

Katherine Devine, bandarískur knattspyrnumarkvörður, er komin til liðs við Íslandsmeistara Breiðabliks frá írska félaginu Treaty United.

Hún á að leysa Telmu Ívarsdóttur af hólmi en Telma gekk á dögunum til liðs við Rangers í Skotlandi og hefur fengið leikheimild með Breiðabliki.

Devine er 23 ára gömul og er nýkomin úr Vanderbilt-háskólanum í Nashville þar sem hún hélt marki sínu hreinu í 23 skipti í 59 leikjum og var heiðruð margvíslega fyrir frammistöðu sína.

Hún hafði ekki langa viðdvöl á Írlandi, hún samdi við Treaty United um miðjan janúar en er nú komin í raðir Breiðabliks í staðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert