Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir að Gylfi Þór Sigurðsson hafi sýnt félaginu vanvirðingu í aðdraganda þess að hann ákvað að yfirgefa félagið og ganga til liðs við Víking.
Björn skrifaði pistil um mál Gylfa á Facebook-síðuna Fjósið. Þar vísar hann til leiks Vals gegn ÍA í deildabikarnum á dögunum þar sem Gylfi hafi borið fyrirliðabandið. Björn segir um það:
Í síðustu viku fór af stað atburðarrás í kjölfar þess að Gylfi og hans fólk tjáðu okkur að hann vildi fara frá félaginu. Í kjölfarið sýndi Gylfi bæði liðsfélögum sínum og félaginu öllu mikla vanvirðingu með frammistöðu sinni þegar hann bar fyrirliðabandið í síðasta leik gegn ÍA. Það var ekki sá Gylfi sem við þekkjum. Það var mat stjórnar eftir samtöl við leikmenn og aðila í kringum hópinn að með þessari framkomu hefði orðið ákveðinn trúnaðarbrestur milli leikmannsins og hópsins.
Pistill Björn er í heild sinni þannig:
Kæru Valsmenn.
Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum samþykktum við í stjórn knattspyrnudeildar tilboð sem bárust í Gylfa Þór Sigurðsson leikmann okkar í gær. Voru það tilboð frá bæði Víkingi Reykjavík og Breiðabliki. Víkingur og Gylfi Þór náðu síðan saman um kaup og kjör og er því ljóst að Gylfi er ekki lengur leikmaður Vals.
Í tilefni þessa og þeirrar umræðu sem mun nú fara af stað teljum við mikilvægt að þið stuðningsmenn séuð upplýstir um okkar sjónarmið í málinu. Við gerum okkur grein fyrir því að þessi ákvörðun er umdeild og hún var ekki auðveld.
Mikilvægast er að hafa í huga að það er enginn leikmaður sem spilar fyrir Val stærri en félagið okkar. Valur er í okkar huga stærsta og sigursælasta íþróttafélag landsins sem státar af árangri sem öll önnur íþróttafélög landsins öfunda okkur af.
Þrátt fyrir áhuga annarra liða stóð ekki til að selja Gylfa Þór í vetur. Gylfi er frábær leikmaður og karakter og hefur verið frábær í alla staði eftir að hann kom til okkar.
Í síðustu viku fór af stað atburðarrás í kjölfar þess að Gylfi og hans fólk tjáðu okkur að hann vildi fara frá félaginu. Í kjölfarið sýndi Gylfi bæði liðsfélögum sínum og félaginu öllu mikla vanvirðingu með frammistöðu sinni þegar hann bar fyrirliðabandið í síðasta leik gegn ÍA. Það var ekki sá Gylfi sem við þekkjum. Það var mat stjórnar eftir samtöl við leikmenn og aðila í kringum hópinn að með þessari framkomu hefði orðið ákveðinn trúnaðarbrestur milli leikmannsins og hópsins.
Í okkar huga var því ekkert annað í stöðunni en að hámarka það sem félagið gat fengið fyrir leikmanninn. Í kjölfarið komu síðan tvö ásættanleg tilboð frá Breiðabliki og Víkingi Reykjavík sem náði síðan samkomulagi við Gylfa eftir að við gáfum þeim leyfi til þess að ræða við leikmanninn.
Við teljum okkur vera með einn sterkasta hópinn í deildinni og það er afar mikilvægt að fjölga leikmínútum okkar leikmanna, sem hafa verið frá vegna meiðsla. Við höfum fengið flottar styrkingar inn í liðið í vetur og ætlum okkur að styrkja liðið frekar. Fram undan er spennandi tímabil þar sem við erum m.a. í Evrópukeppni og liðið hefur æft vel í vetur og leikmenn sem hafa verið frá eru að koma til baka.
Nú er það strákanna í liðinu, og okkar allra í Val, að snúa bökum saman og sýna fólki hversu öflugt félag við erum.
f.h. stjórnar knattspyrnudeildar Vals
Björn Steinar Jónsson